Nýr námsefnisvefur MMS kominn í loftið
22. október 2026
Við kynnum með ánægju nýjan námsefnisvef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu! Þar er allt námsefni okkar aðgengilegt á einum stað, með leit og síum sem auðvelda kennurum og öðru starfsfólki skóla að finna efni eftir skólastigi, námsgrein og tegund efnis.

Nýi vefurinn hefur verið í smíðum að undanförnu og er nú tilbúinn að taka við af eldri námsefnisvef. Við hlökkum til að þróa hann áfram með þarfir kennara og annars starfsfólks skóla að leiðarljósi og tökum vel á móti ábendingum.
Nýi vefurinn tekur við fyrr en áætlað var
Fyrirhugað var að loka eldri námsefnisvef á mms.is/namsefni síðar á árinu. Vegna alvarlegra veikleika í PHP sem CERT-IS hefur varað við var lokuninni flýtt í öryggisskyni.
Það kemur sér því vel að nýi vefurinn er þegar tilbúinn að taka við. Breytingin verður einfaldlega fyrr en áætlað var og við bjóðum notendur hjartanlega velkomna á nýja vefinn.
Við hvetjum jafnframt til þess að bókamerki og tenglar sem vísa á eldri námsefnisvefinn séu uppfærð.
Aðgangur að kennaraefni
Hluti námsefnisins er eingöngu ætlaður kennurum. Til að opna læst kennaraefni þarf starfsfólk skóla að skrá sig inn á nýja vefinn með rafrænum skilríkjum.
Aðgangurinn byggist á því að viðkomandi sé skráður sem starfsmaður skóla í Nemendagrunni. Við hvetjum skólastjórnendur og starfsfólk með viðeigandi aðgangsheimildir til að yfirfara skráninguna og tryggja að kennitala og netfang starfsfólks séu rétt skráð.