Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Leyfisbréf/Leyfisveitingar

1. apríl 2024

Frá og með 1. apríl nk. taka í gildi lög um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, nr. 91/2023, og samkvæmt 11. tölul. 9. gr. þeirra færist umsýsla þessara mála og útgáfa leyfisbréfa til ráðherra og mennta- og barnamálaráðuneytis.

logo-MRN-fotur-vef

Þann 1. apríl sl. tóku gildi ný lög um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Um er að ræða nýja þjónustu- og þekkingarstofnun sem starfar í þágu barna og ungmenna á sviði menntamála. Stofnunin þjónustar leik-, grunn- og framhaldsskóla um land allt með áherslu á gæði menntunar og skólaþjónustu.

Með gildistöku laganna var Menntamálastofnun lögð niður og færðust ýmis verkefni yfir til mennta- og barnamálaráðuneytisins. Meðal þeirra verkefna eru:

  • Afgreiðsla og útgáfa leyfisbréfa kennara, náms- og starfsráðgjafa og bókasafns- og upplýsingafræðinga.
    Sótt er um á

    eyðublaðavef Stjórnarráðsins

  • Veiting undanþága til lausráðninga í kennslustörf.
    Sótt er um á

    Mínum síðum á Ísland.is

  • Móttaka tilkynninga um ráðningar kennsluréttindanema.
    Tilkynnt er um ráðningu á

    eyðublaðavef Stjórnarráðsins

  • Veiting viðurkenninga til einkaskóla á framhaldsskólastigi.

  • Staðfesting þjónustusamninga sjálfstætt rekinna skóla.

  • Eftirlit með skólastarfi og ytra mat.

  • Ábyrgð á alþjóðlegum verkefnum, t.d. PISA, EURYDICE og TALIS.

Ítarlegri upplýsingar um verkefnin og fyrirkomulag þeirra verða birtar á vef Stjórnarráðsins á næstunni.

Þá verður dreifibréf sent til allra grunn- og framhaldsskóla landsins, skólaskrifstofa og sveitarfélaga þar sem kynntar verða breytingar á afgreiðslu undanþága til kennslustarfa.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@mms.is

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Víkurhvarf 3
203 Kópavogur

Kennitala: 660124-1280