Fara beint í efnið
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Forsíða

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Alþjóðlegur dagur læsis

8. september 2026

Alþjóðlegur dagur læsis er haldinn 8. september ár hvert. Í ár eru jafnframt 60 ár síðan UNESCO kom deginum á fót og yfirskrift dagsins er Læsi fyrir fólk, jörðina og farsæld.

Læsi er ein mikilvægasta undirstaða náms og virkrar þátttöku í samfélaginu. Að byggja upp sterka lestrarfærni krefst samfelldrar og markvissrar vinnu frá fyrstu árum barns og í gegnum alla skólagönguna. Þar skipta máli ríkur málþroski, góð og markviss kennsla, fjölbreytt tækifæri til lestrar og ritunar og regluleg eftirfylgni með framförum nemenda.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu styður starf skóla með námsefni, matstækjum, fræðslu og verkfærum sem nýtast við að efla málþroska, lestur, lesskilning og ritun barna og ungmenna. Í tilefni alþjóðlegs dags læsis vekjum við athygli á nokkrum þessara úrræða.

Sterkur grunnur lagður strax í leikskóla

Góður málþroski er mikilvæg undirstaða læsis. LANIS er nýtt skimunarverkfæri fyrir tal- og málþroska þriggja ára barna sem nú er innleitt í samstarfi við námsleið í talmeinafræði við Háskóla Íslands.

LANIS gefur heildstæða mynd af stöðu barns og hjálpar til við að koma snemma auga á börn sem gætu þurft frekari stuðning. Niðurstöðurnar hjálpa leikskólum að skipuleggja markvissa málörvun og íhlutun og efla samstarf við foreldra. LANIS tekur jafnframt mið af fjöltyngdum börnum og stöðu þeirra bæði í íslensku og heimamáli.

Handbók LANIS

Læsisvefurinn – verkfæri fyrir markvissa lestrarkennslu

Á Læsisvefnum er að finna fræðslu, kennsluaðferðir og verkefni sem nýtast starfsfólki skóla við að skipuleggja lestrarkennslu og bregðast við ólíkum þörfum nemenda.

Efnið nær meðal annars yfir:

  • forsendur læsis

  • lesfimi

  • orðaforða og lesskilning

  • ritun

  • lestrarmenningu

Á Læsisvefnum er einnig að finna Ritunarrammann, heildstæðan matsramma sem styður kennara við að skipuleggja markvissa ritunarkennslu og fylgjast með þróun ritunarfærni nemenda. Lestur og ritun eru nátengdir þættir læsis og markviss vinna með ritun getur jafnframt stutt við lesskilning og rökhugsun nemenda.

Ramminn veitir yfirsýn yfir helstu þætti ritunar og þann stíganda sem þarf að byggja upp frá upphafi til loka grunnskóla. Hann getur nýst við skipulagningu kennslu, mat á stöðu nemenda og leiðbeinandi endurgjöf og hjálpað bæði kennurum og nemendum að sjá næstu skref í þróun ritunarfærni.

Áhersla er lögð á að kennarar geti nýtt verkfærin bæði í almennri kennslu og til stuðnings nemendum sem þurfa frekari þjálfun.

Skoða Læsisvefinn

Leið til læsis styður við kennslu á yngsta stigi

Leið til læsis er stuðningskerfi í lestrarkennslu fyrir kennara á yngsta stigi grunnskóla. Kerfið byggir meðal annars á matstækjum og handbók með fræðslu og leiðbeiningum um kennsluaðferðir sem tengjast helstu þáttum læsis.

Þar er fjallað um hljóðkerfisfærni, umskráningu, lesfimi, orðaforða og lesskilning og hvernig kennarar geta lagað kennslu að ólíkum þörfum nemenda. Markmiðið er að auðvelda kennurum að fylgjast með lestrarþróun nemenda og bregðast við þegar þörf er á frekari stuðningi.

Fjölbreytt námsefni fyrir ólíka lesendur

Á námsefnisvef MMS er fjölbreytt efni sem styður við lestrarnám, lesskilning, ritun og lestraránægju á ólíkum skólastigum.

Þar má meðal annars finna:

  • Lestrarlandið með lestrarbók, sögubók, vef og verkefnabókum

  • Listina að lesa og skrifa, sem styður fyrstu skrefin í lestri og ritun

  • Sestu og lestu, Lesrún og Ritrún, með fjölbreyttum lestrar- og ritunarverkefnum

  • smábækur og auðlesnar sögur fyrir nemendur á mismunandi stigum lestrarnáms

  • Einmitt! Lærum íslensku, ætlað nemendum sem læra íslensku sem annað tungumál

Námsefnið er aðgengilegt á namsefni.mms.is og hægt er að leita eftir námsgrein, skólastigi og tegund efnis.

Mat sem styður við grunnfærni og næstu skref í námi

Lesfimi- og stuðningspróf Matsferils eru mikilvæg verkfæri til að styðja við grunnfærni í læsi. Þau veita upplýsingar um afmarkaða þætti lestrarfærni og geta hjálpað kennurum að greina stöðu nemenda, fylgjast með framförum og bregðast við þegar þörf er á markvissari kennslu eða stuðningi.

Stöðu- og framvindupróf í lesskilningi styðja við næstu skref í námi með því að veita upplýsingar um stöðu og þróun lesskilnings nemenda. Niðurstöðurnar geta nýst kennurum við að skipuleggja kennslu, velja viðeigandi áherslur og fylgjast með framvindu yfir tíma.

Mikilvægt er að líta á niðurstöður prófanna sem hluta af heildstæðu námsmati og nýta þær með öðrum upplýsingum um nám, framfarir og stöðu nemandans.

Nánar um lesfimi- og stuðningspróf

Læsi þróast alla skólagönguna

Á alþjóðlegum degi læsis er mikilvægt að minna á að læsi þróast ekki á einu skólastigi heldur í gegnum alla skólagönguna. Sterkur málþroski, markviss kennsla, fjölbreytt námsefni og regluleg eftirfylgni leggja saman grunn að góðri lestrarfærni.

Með því að greina þarfir nemenda snemma og bregðast við þeim með viðeigandi kennslu og stuðningi má skapa fleiri börnum og ungmennum tækifæri til að lesa, skilja, tjá sig og taka virkan þátt í námi og samfélagi.

Ráðstefna um læsi

Í tilefni dagsins minnum við einnig á læsisráðstefnuna Læsi til náms og yndis, sem Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu standa fyrir laugardaginn 12. september.

Á ráðstefnunni verða fjölbreytt erindi, málstofur og umræður um læsi sem grunn að námi, þátttöku og ánægju í skólastarfi. Ráðstefnan er ætluð kennurum, skólastjórnendum, fræðafólki og öðrum sem hafa áhuga á læsi og mikilvægi þess í skólastarfi.

Dagskrá og skráning á ráðstefnuna

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Hafðu samband

Símanúmer: 514 7500
Netfang: postur@midstodmenntunar.is
Póstlistaskráning

Opnun­ar­tími

Mánudaga til fimmtudaga:
09:00 - 15:00
Föstudaga: 09:00 - 12:00

Heim­il­is­fang

Borgartún 33

105 Reykjavík

Kennitala: 660124-1280