Vísindaráðgjöf
Lyfjastofnun veitir vísindaráðgjöf varðandi þróun lyfja:
Markmið vísindaráðgjafar er að greiða fyrir umræðu um þróun nýrra lyfja eða meðferða.
Vísindaráðgjöf er veitt á þeim sviðum sem sérfræðingar Lyfjastofnunar hafa sérhæft sig í og byggir á gögnum frá umsækjanda.
Vísindaráðgjöf getur farið fram með hefðbundnum fundum, skriflega eða með fjarfundum.
Fyrirtæki, einstaklingar eða háskólar geta sótt um slíka ráðgjöf.
Hægt er að óska eftir vísindaráðgjöf á hvaða stigi sem er í þróun lyfs og óháð vali um skráningarferil til samþykktar.
Beiðni um vísindaráðgjöf
Umsækjendur geta óskað eftir vísindaráðgjöf til Lyfjastofnunar með því að fylla út umsóknareyðublað og senda það til stofnunarinnar, helst í gegnum Eudralink.
Það hvort unnt er að veita þá ráðgjöf sem óskað er eftir er háð mati hverju sinni. Öllum beiðnum um vísindaráðgjöf er svarað en allt að tvær vikur geta liðið þangað til unnt er að bregðast við beiðnum.
Sjá nánari upplýsingar (á ensku) um umsóknarferlið og sækja um.
Gjald fyrir vísindaráðgjöf
Gjald er tekið fyrir vísindaráðgjöf skv. gjaldskrá stofnunarinnar, eftir fjölda tíma. Sjá nánari upplýsingar í gjaldskrá.
Hluti verkefna er undanþeginn gjaldi en það er háð mati Lyfjastofnunar hverju sinni, sjá upplýsingar á ensku.
