Innflutningur einstaklinga á lyfjum
Lyf einstaklinga í farangri eða póst- og vörusendingum kallast innflutningur einstaklinga á lyfjum. Mismunandi reglur gilda um póst-og vörusendingar lyfja eftir því hvaða flokki lyfin tilheyra og hvaðan þau koma.
Um innflutning einstaklinga á lyfjum fer eftir reglugerð nr. 1277/2022 og auk þess, eftir því sem við á, reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni.
Reglurnar fara eftir því frá hvaða landi lyfið er að koma, þ.e. hvort lyfið er að koma frá landi innan eða utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES), hvort lyfið er í farangri eða kemur í pósti eða vörusendingu. Einnig skiptir máli hvaða flokki lyfin tilheyra. Um er að ræða þrjá flokka:
Almenn lyf
Þetta eru lyf sem ekki eru ávana- og fíknilyf eða lyf sem eru á WADA lista, en eru ávísanaskyld, þ.e. lyfseðil þarf frá lækni til að kaupa þau skv. íslenskum reglum. Að auki teljast lyf sem seld eru í lausasölu til almennra lyfja.
Ávana og fíknilyf
Lyf sem innihalda að hluta til efni sem tilgreind eru í fylgiskjali 1 við reglugerð nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni.
Lyf á bannlista WADA( Alþjóða-lyfjaeftirlitsstofnunarinnar )
Lyf sem innihalda efni sem finna má í köflum S1 (vefjaaukandi efni/sterar) og S2 (peptíð hormón, vaxtarþættir og skyld efni) eru á bannlista WADA
Almennt gildir að heimilt er að flytja til landsins lyf til eigin nota, þó með ákveðnum takmörkunum. Reglurnar fara eftir því frá hvaða landi lyfið er að koma (innan eða utan EES), hvort lyfið er í farangri eða kemur í pósti/vörusendingu og hvaða flokki lyfin tilheyra. Í neðangreindum fellilista er lýsing á helstu atriðum en nánari upplýsingar fyrir hvern og einn flokk er hægt að lesa í hverjum kafla fyrir sig.
Skylt er að framvísa gögnum til tollayfirvalda ef óskað er: vottorð læknis, frumrit lyfjaávísunar, áritunarmiða.
Upplýsingar um hvort lyf telst ávana- og fíknilyf er að finna fyrir hvert og eitt lyf í sérlyfjaskrá. Lyfin eru merkt með þessu merki (sjá skjáskot):

Listi yfir ávana- og fíknilyf
Í Sérlyfjaskrá er listi yfir ávana- og fíknilyf og ítarupplýsingar um lyfin.
