Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Diphenhydramine

Lyf

Diphenhydramine [P/N]

Sérlyfjaheiti: 

Eiginleikar: Andhistamínlyf

Ábendingar: Bráðaofnæmi. Þina (e. urticaria). Ferðaveiki við langa flutninga í sjúkrabíl.

Frábendingar: Versnun á astma eða einkenni frá neðri loftvegum. Lyfið á EKKI að gefa nýburum, fyrirburum, eða konum með barn á brjósti.

Fullorðnir

▸ 25-50 mg IV/IM [I]

Börn

▸ 1 mg/kg IV/IM [I]

Ath: Ef alvarleg einkenni í bráðaofnæmi skal adrenalín gefið fyrst.

Aukaverkanir: Getur valdið slævingu, höfuðverk, svima.

Nánar:

Anaphylaxis eru bráðaofnæmisviðbrögð með áhrif á amk tvö líffærakerfi (húð, öndunarfæri, blóðrás, melting). Við alvarlegan anaphylaxis skal alltaf gefa adrenalín. Diphenhydramine er histamín hemill sem notaður er við bráðaofnæmi – anaphylaxis – EFTIR gjöf adrenalíns. Gagnast einnig til að draga úr kláða við einfalda þinu (e. urticariu), þ.e. útbrota án “system” áhrifa). Histamín hemlar koma í veg fyrir frekari losun histamíns og draga þannig úr alvarlegu og víðtæku bólguviðbragði í líkamanum.


Lykill: [FR] = First Responder (vettvangshjálp); [B] = basic (sjúkraflutningamaður); [I] = intermediate/advanced (neyðarflutningamaður); [P] = paramedic (bráðatæknir). ⌛ = lyf skal gefið á X mín. ↻ = endurtaka má lyfjagjöf eftir X tíma. 📞 = Leitið ráðgjafar / heimildar hjá lækni. 

Heimildir:

NIH. FDA Diphenhydramine Drug Label Information. https://dailymed.nlm.nih.gov/dailymed/drugInfo.cfm?setid=6fe6fe2d-4405-4e7a-a2ed-5eb367d52842 

Uppruni: Stöðluð fyrirmæli SHS

Dagsetning: 21.09.2020

Höfundur: Eggert Eyjólfsson, Sigurbjörg Bragadóttir

Uppfært: 22.04.2026 - Bergur Ingi Geirsson

Samþykkt: DrVSBI/ÞEK