Adrenalín Epipen/Jr
Adrenalín Epipen® / Jr [B]
Epipen Jr® grænn miði = 150 mcg; Epipen® appelsínugulur miði = 300 mcg
Eiginleikar: Víkkar berkjur (B2), hraðar hjartslætti (B1) og hækkar blóðþrýsting (A1). Hindrar losun ofnæmisboðefna frá mast frumum.
Ábendingar: Bráðaofnæmiskast.
Frábendingar: Engar í bráðaofnæmiskasti.
Fullorðnir og börn >30 kg:
▸ 300 mcg IM ↻ 5-15 mín [B/FR*]
Börn 15-30 kg:
▸ 150 mcg IM ↻ 5-15 mín [B/FR*]
📞 Leitið ráða hjá lækni ef þörf er fyrir gjöf adrenalíns við bráðaofnæmi hjá barni <15 kg.
↻ Endurtakið eftir 5-15 mín ef nauðsynlegt
Ath: Gefa lyfið í vöðva utarlega framanvert á læri. Það þarf að halda pennanum í ca. 5 sek til þess að tækið gefi allan skammtinn. Hver penni inniheldur adrenalín 150 mcg = 0,15 mg eða 300 mcg = 0,3 mg.
Varúð: Vakta sjúkling og flytja á sjúkrahús eftir gjöf adrenalíns. Einkenni bráðaofnæmis geta endurtekið sig. Breytingar á hjartslætti og blóðþrýstingi eru líklegar.
Aukaverkanir: Hár blóðþrýstingur, hraður hjartsláttur, hjartsláttartruflanir. Hjartaöng. Kvíði, óróleiki, skjálfti, höfuðverkur. Hækkaður blóðsykur. Ógleði, uppköst.
Nánar:
Adrenalín er eina lyfið sem talið er sannað að dragi úr dánarlíkum við bráðaofnæmiskast. Kynnið ykkur vel upplýsingar um bráðaofnæmi HÉR og leiðbeiningar um notkun á sjálfvirku inndælingartæki Epipen (Jr) HÉR, ásamt leiðbeiningamyndbandi HÉR.
*Vettvangshjálparliðar sem fengið hafa viðeigandi þjálfun hafa heimild til að beita Epipen®/Jr við bráðaofnæmiskasti að fengnu samþykki umsjónarlæknis á starfssvæði þeirra.
Heimildir:
Plakat um bráðaofnæmiskast á vef landlæknis.
Sérlyfjaskrá:
https://www.serlyfjaskra.is/FileRepos/877ad2dc-82a1-e911-80f3-00155d15472c/EpiPen_SmPC.pdf
https://www.serlyfjaskra.is/FileRepos/4e59ac03-18b9-e911-80f3-00155d15472c/EpiPen_Jr_SmPC.pdf
Epipen(Jr) leiðbeiningar um notkun á sjálfvirku inndælingartæki:
http://www.medicininfo.dk/epipeniceland/
Dagsetning: 08.08.2020
Höfundur: Viðar Magnússon
Samþykkt: DrVM
Rafræn útgáfa. Ekki er hægt að treysta því að útprentað eða vistað eintak sé rétt útgáfa. Þessar leiðbeiningar eru eingöngu til leiðsagnar; þeir sem starfa samkvæmt þeim bera ábyrgð á réttum vinnubrögðum og gagnrýnni notkun þessara leiðbeininga.
