Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Acetýlsalísýlsýra/Aspirín/Hjartamagnyl

Lyf

Ábendingar: Grunur um bráða kransæðastíflu. 

Frábendingar: Ofnæmi fyrir aspiríni eða öðrum NSAID lyfjum.

Fullorðnir

Brjóstverkur: 300 mg PO, bryðja ef mögulegt

Ath: Sjúkraflutningamenn ættu að hafa lágan þröskuld fyrir gjöf aspiríns ef grunur er um brátt kransæðaheilkenni. Best er að gefa lyfið snemma í ferlinu. Taflan skal tuggin ef mögulegt. Ekki skal fresta gjöf þótt sjúklingur taki blóðþynningu fyrir. Ef grunur er um brátt kransæðaheilkenni skal gefa aspirin þó sjúklingur hafi tekið aspirin fyrr um daginn. Hafa í huga að til greina kemur að gefa aspirín IV ef mikil ógleði/uppköst og lyfið til á því formi. Lyfið skal ekki gefið börnum vegna hættu á Reye heilkenni.

Varúð: Alvarlegur blæðingarsjúkdómur, virk blæðing (t.d. frá meltingarvegi), sárasjúkdómar í meltingarvegi, saga um astma sem versnar við NSAID lyf, notkun annarra blóðþynnandi lyfja, hár aldur með blæðingarhættu.

Aukaverkanir: Ógleði, uppköst, kviðverkir, blæðingar (t.d. nefblæðingar, tannholdsblæðingar, meltingavegsblæðingar).

Nánar: Aspirín hindrar óafturkræft cyclooxygenasa (COX-1) í blóðflögum og kemur í veg fyrir myndun thromboxans A2. Þetta dregur úr blóðflöguvirkni og minnkar líkur á blóðsega og lokun kransæða. Áhrifin eru viðvarandi yfir líftíma blóðflögu (~7 dagar). 

Lykill: [FR] = First Responder (vettvangshjálp); [B] = basic (sjúkraflutningamaður); [I] = intermediate/advanced (neyðarflutningamaður); [P] = paramedic (bráðatæknir). ⌛ = lyf skal gefið á X mín. ↻ = endurtaka má lyfjagjöf eftir X tíma. 📞 = Leitið ráðgjafar / heimildar hjá lækni.