Fara beint í efnið
Landskjörstjórn Forsíða
Landskjörstjórn Forsíða

Landskjörstjórn

Úrskurðarfundur landskjörstjórnar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026

4. september 2026

Landskjörstjórn kemur saman til fundar í Eddu, húsi íslenskunnar klukkan 14:00 þann 22. september 2026.

Með vísan til 120. gr. kosningalaga nr. 112/2021 tilkynnist að landskjörstjórn kemur saman til fundar í Eddu, húsi íslenskunnar, Arngrímsgötu 5 í Reykjavík, klukkan 14:00 þann 22. september 2026 til að úrskurða um gildi ágreiningsseðla sem henni hafa borist frá yfirkjörstjórnum kjördæma. Að því loknu mun landskjörstjórn tilkynna niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar er fram fór þann 29. ágúst síðastliðinn.

Fundinum verður streymt á landskjorstorn.is.

Landskjörstjórn

Heim­il­is­fang

Tjarnargata 4

101 Reykjavík

kt. 550222-0510

Hafðu samband

Sími: 540 7500

postur@landskjorstjorn.is