Fara beint í efnið
Landskjörstjórn Forsíða
Landskjörstjórn Forsíða

Landskjörstjórn

Tilkynning um niðurstöðu talningar við þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026

30. ágúst 2026

Niðurstöður talningar úr öllum kjördæmum liggja nú fyrir.

Landskjörstjórn hafa borist talningarskýrslur frá öllum yfirkjörstjórnum kjördæma vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fór fram 29. ágúst 2026.

Fjöldi kjósenda á kjörskrá var 272.591. Greidd atkvæði voru 225.031. Kjörsókn var því 82,6%.

Það tilkynnist hér með skv. 107. gr. kosningalaga nr. 112/2021 að niðurstaða talningar atkvæða er svohljóðandi:

Gild atkvæði: 223.379 atkvæði

Samtals auðir seðlar og ógildir: 1.652 seðlar

Auðir seðlar: 897

Ógildir seðlar: 755

Skipting atkvæða

Já: 105.339 - 47,2%

Nei: 118.040 - 52,8%

Fjöldi kjósenda á kjörskrá er birtur með fyrirvara um leiðréttingar sem gerðar hafa verið á kjörskrá eftir útgáfu hennar þann 24. júlí sl.

Fundur landskjörstjórnar þar sem úrskurðað verður um gildi ágreiningsatkvæða og úrslitum atkvæðagreiðslunnar lýst, sbr. 120. gr. kosningalaga verður auglýstur síðar. Vakin er athygli á því að úrskurður landskjörstjórnar kann að hafa áhrif á endanlegan fjölda gildra atkvæða.

Landskjörstjórn

Heim­il­is­fang

Tjarnargata 4

101 Reykjavík

kt. 550222-0510

Hafðu samband

Sími: 540 7500

postur@landskjorstjorn.is