Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landskjörstjórn Forsíða
Landskjörstjórn Forsíða

Landskjörstjórn

Sveitarstjórnarkosningar 2026

3. mars 2026

Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí 2026.

Á grundvelli 1. mgr. 24. gr. kosningalaga, nr. 112/2021, fara almennar sveitarstjórnarkosningar fram 16. maí 2026. Frestur til að skila framboðslistum til yfirkjörstjórnar í viðkomandi sveitarfélagi er til kl. 12 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026. Sveitarstjórnarmenn sem hyggjast skorast undan endurkjöri skulu tilkynna þá ákvörðun til yfirkjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests.

Rafrænt meðmælendakerfi fyrir framboð verður opnað þriðjudaginn 3. mars 2026 á Ísland.is.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst 17. apríl 2026.

Þetta auglýsist hér með samkvæmt 2. mgr. 24. gr. framangreindra laga.

Lands­kjör­stjórn

Heim­il­is­fang

Tjarnargata 4

101 Reykjavík

kt. 550222-0510

Hafðu samband

Sími: 540 7500

postur@landskjorstjorn.is