Fara beint í efnið

Samráðsfundur með fulltrúum stjórnmálasamtaka

30. ágúst 2023

Landskjörstjórn fundaði með umboðsmönnum og öðrum fulltrúum stjórnmálasamtaka

Fundur með umboðsmönnum

Landskjörstjórn bauð fulltrúum frá þeim stjórnmálasamtökum sem buðu fram við síðustu kosningar til Alþingis til fundar við sig til að ræða um efni og gerð væntanlegrar reglugerðar um umboðsmenn. Vel var mætt á fundinn og komu margar gagnlegar ábendingar frá fulltrúum flokkanna sem nýtast munu við áframhaldandi vinnu við reglugerð um umboðsmenn.

Fundurinn var aðeins fyrsta skrefið í samráði um gerð reglugerðarinnar en hún og fleiri reglugerðir tengdar kosningum munu væntanlega líta dagsins ljós í samráðsgátt stjórnvalda á næstu mánuðum.

Lands­kjör­stjórn

Heim­il­is­fang

Tjarnargata 4

101 Reykjavík

kt. 550222-0510

Hafðu samband

Sími: 540 7500

postur@landskjorstjorn.is