Fara beint í efnið

Móttaka framboða til forseta Íslands

12. apríl 2024

Landskjörstjórn tekur við framboðum til forseta Íslands frá klukkan 10:00 – 12:00 föstudaginn 26. apríl 2024 í Stemmu í Hörpu.

Móttaka framboða til forseta

Til væntanlegra frambjóðenda í forsetakosningum

Landskjörstjórn kemur saman til fundar og tekur við framboðum til forseta Íslands frá klukkan 10:00 – 12:00 föstudaginn 26. apríl 2024 í fundarherberginu Stemmu í Hörpu.

Framboðum skal fylgja:

  • Tilkynning um framboð.

  • Undirritað samþykki frambjóðenda fyrir því að fara í framboð.

  • Meðmæli 1.500 – 3.000 kosningabærra manna.

Landskjörstjórn hefur útbúið sniðmát af framboðstilkynningu sem frambjóðendum er frjálst að nota.

Sé meðmælum skilað á rafrænan hátt í gegnum meðmælendakerfi á Ísland.is skal taka það fram í tilkynningunni.

Ef meðmælum er skilað á pappír skal skila inn frumritum meðmælablaða. Mælst er til þess að frambjóðendur númeri hverja blaðsíðu og slái inn kennitölur meðmælenda í töflureikni (s.s. Excel) til þess að auðvelda yfirferð. Hægt er að nálgast sniðmát fyrir innsláttinn hér.

Framboðstilkynningu má undirrita eigin hendi eða með rafrænni undirritun. Ef tilkynningin er undirrituð rafrænt skal hún send á postur@landskjorstjorn.is.

Eftir að framboðsfrestur rennur út, klukkan 12:00 þann 26. apríl næstkomandi, fer landskjörstjórn yfir framboðin og kannar að öll formsskilyrði séu uppfyllt og úrskurðar í kjölfarið um gild framboð.

Lands­kjör­stjórn

Heim­il­is­fang

Tjarnargata 4

101 Reykjavík

kt. 550222-0510

Hafðu samband

Sími: 540 7500

postur@landskjorstjorn.is