Fara beint í efnið
Landskjörstjórn Forsíða
Landskjörstjórn Forsíða

Landskjörstjórn

Leiðbeiningar um mat á gildi atkvæða

8. maí 2026

Landskjörstjórn hefur gefið út nýjar leiðbeiningar um mat á gildi atkvæða í kosningum.

Landskjörstjórn hefur gefið út nýjar leiðbeiningar um mat á gildi atkvæða í kosningum sem eru ætlaðar yfirkjörstjórnum, umboðsmönnum framboða og þeim er koma að talningu atkvæða í kosningum í þeim tilgangi að leiðbeina um úrlausn vafa- eða ágreiningsmála sem upp kunna að koma.

Í leiðbeiningunum er fjallað um ýmis tilvik sem koma upp í kosningaframkvæmd, veittar skýringar á ákvæðum kosningalaga auk þess sem birt eru skýringardæmi um hvernig mati á gildi atkvæða hefur verið háttað í fyrri kosningum. Þá er fjallað um mat á gildi atkvæðaseðla sem vafi eða ágreiningur kann að vera um hvort séu gildir eða ógildir og um álitamál varðandi gildi atkvæðaseðla, bæði utankjörfundaratkvæða og atkvæða sem greidd eru á kjörfundi, í öllum kosningum sem fram fara á grundvelli kosningalaga.

Í ritinu er leitast við að gera grein fyrir þeim niðurstöðum sem liggja fyrir varðandi mat á gildi atkvæða í kosningum, sérstaklega hjá kjörbréfanefnd Alþingis, auk þess sem fjallað er um þau meginsjónarmið sem gilda um mat á gildi atkvæða samkvæmt gildandi rétti.

Leiðbeiningarritinu verður dreift til allra yfirkjörstjórna en rafræna útgáfu þess er hægt að nálgast á vef landskjörstjórnar.

Landskjörstjórn

Heim­il­is­fang

Tjarnargata 4

101 Reykjavík

kt. 550222-0510

Hafðu samband

Sími: 540 7500

postur@landskjorstjorn.is