Leiðbeiningar til kjósenda um upplýsingaöryggi
24. ágúst 2026
Gefnar hafa verið út stuttar leiðbeiningar til kjósenda sem eru unnar í samstarfi landskjörstjórnar, Fjölmiðlanefndar, Fjarskiptastofu, CERT-IS, Persónuverndar og embættis ríkislögreglustjóra.

Það er mikilvægt að leggja mat á áreiðanleika og öryggi þeirra upplýsinga sem birtar eru í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna. Með því að beita gagnrýnni hugsun tekur þú, sem kjósandi, upplýsta ákvörðun í samræmi við þína sannfæringu.
Gefnar hafa verið út stuttar leiðbeiningar til kjósenda sem eru unnar í samstarfi landskjörstjórnar, Fjölmiðlanefndar, Fjarskiptastofu, CERT-IS, Persónuverndar og embættis ríkislögreglustjóra.
Leiðbeiningarnar má finna hér.
Kynnum okkur málið frá fleiri en einum miðli og leitum að hlutlægum og nákvæmum upplýsingum áður en við tökum afstöðu.
Leitum að opinberum upplýsingum um þjóðaratkvæðagreiðsluna á kosning.is ef við erum óviss um framkvæmd hennar, atkvæðagreiðsluna eða önnur praktísk atriði.
Verum gagnrýnin á efni á samfélagsmiðlum, veltum fyrir okkur trúverðugleika þess og könnum heimildir.
Verum sérstaklega vakandi fyrir gervigreindarefni og athugum hvort myndir, myndskeið eða upplýsingar sem við sjáum hafi verið búin til eða breytt með gervigreind.
Skoðum hver stendur á bak við auglýsingar og kostað efni, sérstaklega ef auglýsingin reynir að hafa áhrif á afstöðu okkar til þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Tilkynnum auglýsingar sem eru óskýrar eða ekki merktar sem auglýsingar á samfélagsmiðlum.
Við eigum ekki að fá óumbeðin markaðsskilaboð í tölvupósti, SMS eða með öðrum rafrænum hætti nema ef við höfum samþykkt slík samskipti.
Verndum aðgangana okkar á samfélagsmiðlum með sterkum og ólíkum lykilorðum og virkjum fjölþátta auðkenningu.
Hugsum um persónuupplýsingarnar okkar og verum meðvituð um hvernig nöfn, símanúmer, netföng og upplýsingar um hegðun okkar geta verið notaðar til að beina auglýsingum að og hafa áhrif á okkur.
Munum að við höfum sjálfstætt val - kynnum okkur málin, sannreynum upplýsingar og tökum ákvörðun á grundvelli áreiðanlegra upplýsinga.
Netvís - Netöryggismiðstöð Íslands hefur jafnframt sett í loftið fræðslusíðu um upplýsingaöryggi á netinu.