Fara beint í efnið
Landskjörstjórn Forsíða
Landskjörstjórn Forsíða

Landskjörstjórn

Landskjörstjórn tilkynnir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu

22. september 2026

Já sögðu 47,2% og Nei sögðu 52,8%.

Í samræmi við 120. gr. kosningalaga nr. 112/2021 kom landskjörstjórn saman þann 22. september 2026 til að úrskurða um gildi ágreiningsseðla og tilkynna um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu þeirrar sem haldin var 29. ágúst síðastliðinn á grundvelli 2. mgr. 2. gr. kosningalaga um hvort Ísland ætti að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Samkvæmt 3. mgr. 123. gr. kosningalaga er niðurstaða atkvæðagreiðslunnar ráðgefandi.

Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar er að Já sögðu 105.338 eða 47,2% og Nei sögðu 118.047 eða 52,8%. Auðir og ógildir seðlar voru 1.646 eða 0,7%.

Landskjörstjórn

Heim­il­is­fang

Tjarnargata 4

101 Reykjavík

kt. 550222-0510

Hafðu samband

Sími: 540 7500

postur@landskjorstjorn.is