Kosningaeftirlit við sveitarstjórnarkosningarnar
18. maí 2026
Sendinefndir sem voru með kosningaeftirlit við sveitarstjórnarkosningarnar lýstu yfir ánægju með móttökurnar sem þær fengu á kjörstöðum og talningarstöðum víðsvegar um landið.

Sendinefndir sem voru með kosningaeftirlit við sveitarstjórnarkosningarnar lýstu yfir ánægju með móttökurnar sem þær fengu á kjörstöðum og talningarstöðum víðsvegar um landið.
Héraðs- og sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins (The Congress of Local and Regional Authorities of the Council of Europe) og bresku samtökin Democracy Volunteers komu hingað til lands í kosningaeftirlit við sveitarstjórnarkosningarnar.
Í fréttatilkynningu héraðs- og sveitarstjórnarþings Evrópuráðsins kemur m.a. fram að framkvæmdin hafi verið skilvirk og að á kjörstöðum hefði ríkt jákvætt andrúmsloft. Þá er því fagnað hversu aðgengilegt og þátttökumiðað íslenska kosningaferlið er, þar sem kjósendur hafi víðtæka möguleika á að greiða atkvæði bæði á kjördag og utan kjörfundar.
Lokaskýrsla héraðs- og sveitarstjórnarþingsins er væntanleg í haust.