Kosningaeftirlit við sveitarstjórnarkosningarnar
12. maí 2026
Landskjörstjórn hefur gefið út heimildir til kosningaeftirlits við sveitarstjórnarkosningarnar. Helstu markmið og tilgangur kosningaeftirlits eru m.a. að auka gagnsæi við framkvæmd kosninga og efla traust kjósenda, framboða og almennings á niðurstöðum kosninga.

Landskjörstjórn hefur gefið út heimildir til kosningaeftirlits við sveitarstjórnarkosningarnar á grundvelli 138. gr. kosningalaga. Annars vegar er um að ræða héraðs- og sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins (The Congress of Local and Regional Authorities of the Council of Europe) og hins vegar bresku samtökin Democracy Volunteers.
Helstu markmið og tilgangur kosningaeftirlits eru meðal annars að auka gagnsæi við framkvæmd kosninga og efla traust kjósenda, framboða og almennings á niðurstöðum kosninga auk þess að gera tillögur til úrbóta á framkvæmd kosninga.
Kosningaeftirlitmenn skulu tilkynna kjörstjórn á kjörstað eða talningarstað um komu sína og brottför og ber að hlíta lögum, reglugerðum og öðrum fyrirmælum og fundarreglum sem í gildi eru á hverjum stað. Landskjörstjórn gefur út sérstök skírteini fyrir þá sem fá heimild til að sinna kosningaeftirliti sem þeir skulu bera við störf sín. Yfirkjörstjórnum sveitarfélaga verður tilkynnt um útgefnar heimildir til kosningaeftirlits.
Landskjörstjórn fagnar komu kosningaeftirlitsmannanna og telur að heimsóknir sem þessar skapi mikilvægan lærdóm en gert er ráð fyrir að niðurstöður kosningaeftirlitsins séu opinberar og að eftirlitið fari fram í samræmi við alþjóðlega staðla á þessu sviði.