Fara beint í efnið
Landskjörstjórn Forsíða
Landskjörstjórn Forsíða

Landskjörstjórn

Kosningaeftirlit og heimsóknir við þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst 2026

28. ágúst 2026

Landskjörstjórn hefur gefið út heimildir til kosningaeftirlits við þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Helstu markmið og tilgangur kosningaeftirlits eru m.a. að auka gagnsæi við framkvæmd kosninga og efla traust kjósenda, framboða og almennings á niðurstöðum kosninga.

Landskjörstjórn hefur gefið út heimildir til kosningaeftirlits við þjóðaratkvæðagreiðsluna á grundvelli 138. gr. kosningalaga. Helstu markmið og tilgangur kosningaeftirlits eru m.a. að auka gagnsæi við framkvæmd kosninga og efla traust kjósenda, framboða og almennings á niðurstöðum kosninga. Kosningaeftirlit getur því styrkt faglega framkvæmd og leitt til umbóta á málefnasviðinu.

Eftirtalin samtök og stofnanir hafa fengið heimild landskjörstjórnar til kosningaeftirlits við þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst:

  • Sendinefnd bresku samtakanna Democracy Volunteers,

  • Sérfræðingateymi Mannréttinda- og lýðræðisstofnunar ÖSE (Office for Democratic Institutions and Human Rights, ODIHR),

  • Heimssýn, samtök sjálfstæðissinna í Evrópumálum.

Gert er ráð fyrir að niðurstöður kosningaeftirlits séu opinberar og að eftirlitið fari fram í samræmi við alþjóðlega staðla á þessu sviði.

Auk þess er hér á landi stödd sendinefnd frá eistneska þinginu (Riigikogu) í því skyni að kynna sér framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Þá er nokkur fjöldi erlendra blaðamanna á landinu til að fylgjast með þjóðaratkvæðagreiðslunni.

Landskjörstjórn

Heim­il­is­fang

Tjarnargata 4

101 Reykjavík

kt. 550222-0510

Hafðu samband

Sími: 540 7500

postur@landskjorstjorn.is