Democracy Volunteers skila skýrslu um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst 2026
20. október 2026
Alþjóðlegu kosningaeftirlitssamtökin Democracy Volunteers hafa nú birt skýrslu sína um þjóðaratkvæðagreiðsluna sem fram fór 29. ágúst 2026.

Á vegum samtakanna kom sendinefnd 16 þjálfaðra eftirlitsmanna til að fylgjast með framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar á 51 stað, víðs vegar um landið. Þetta er í annað sinn sem Democracy Volunteers viðhafa kosningaeftirlit á Íslandi en 16. maí sl. fylgdist fimm manna sendinefnd samtakanna með sveitarstjórnarkosningunum.
Í skýrslunni kemur fram að framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafi verið til fyrirmyndar. Samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum um góða framkvæmd kosninga mátu eftirlitsmennirnir 89% þeirra kjörstaða sem heimsóttir voru sem „mjög góða“ og aðra sem „góða“, en engan sem „slæman“ eða „mjög slæman“. Að mati samtakanna er það til marks um framúrskarandi starf þeirra sem komu að framkvæmd atkvæðagreiðslunnar um land allt. Sérstaklega er bent á aðgengi kjósenda að kjörstöðum, öryggi atkvæðakassa og leynd atkvæðagreiðslunnar sem helstu styrkleika framkvæmdarinnar.
Þá segir að samtökunum þyki mikið til framkvæmdar kosninga á Íslandi koma. Ísland sé til fyrirmyndar þar sem vel skipulagt, skilvirkt, aðgengilegt og leynilegt kosningakerfi sé til staðar sem önnur lýðræðisríki um heim allan geti tekið sér til fyrirmyndar.
Landskjörstjórn fagnar útgáfu skýrslunnar og þakkar Democracy Volunteers fyrir heimsóknina og þeirra mikilvæga framlags sem óháð alþjóðleg kosningaeftirlitsstofnun. Úttektir alþjóðlegra kosningaeftirlitsstofnana styrkja traust á framkvæmd kosninga, veita gagnlegar ábendingar um það sem betur má fara og stuðla að áframhaldandi þróun og eflingu íslensks kosningakerfis.