Fara beint í efnið
Landskjörstjórn Forsíða
Landskjörstjórn Forsíða

Landskjörstjórn

Auglýsing framboðslista

11. apríl 2022

Landskjörstjórn vekur athygli á að þegar niðurstaða yfirkjörstjórnar sveitarfélags liggur fyrir um gildi framboða við sveitarstjórnarkosningar skal hún auglýsa framboðslistana á vef sveitarfélagsins og á vef landskjörstjórnar, sbr. 18. gr. reglugerðar nr. 330/2022 um framboð og meðmæli við sveitarstjórnarkosningar.

Landskjorstjorn

Í auglýsingu sveitarfélagsins skulu koma fram eftirfarandi upplýsingar.

  1. Heiti stjórnmálasamtaka sem bjóða fram listann og listabókstafur þeirra.

  2. Nöfn frambjóðenda hvers lista í réttri röð.

  3. Kennitala frambjóðenda.

  4. Lögheimili frambjóðenda í þágufalli án tilgreiningar á póstnúmeri.

  5. Staða eða starfsheiti frambjóðenda.

Landskjörstjórn mælist til þess að yfirkjörstjórnir sendi landskjörstjórn póst á hlekk á auglýsingu sveitarfélagsins um framboð eins og hún birtist á vef sveitarfélagsins.

Lands­kjör­stjórn

Heim­il­is­fang

Tjarnargata 4

101 Reykjavík

kt. 550222-0510

Hafðu samband

Sími: 540 7500

postur@landskjorstjorn.is