Tekin hefur verið ákvörðun um að flytja stærsta hlutann af starfsemi HSN á Akureyri í Sunnuhlíð um áramót. Heimahjúkrun verður áfram í núverandi húsnæði, sálfélagsleg þjónusta og geðheilsuteymi flytja í Hvannavelli 14. Unnið er að því að finna húsnæði fyrir þann hluta yfirstjórnar sem er á Akureyri.