Sýnatökur flytja á Akureyri
30. september 2022
Sýnatökur vegna COVID-19 verða á heilsugæslustöðinni á Akureyri frá og með 5. október.
Miðvikudaginn 5. október munu sýnatökur vegna COVID-19 flytja aftur á heilsugæslustöðina í Hafnarstræti.
Sýnatökur verða á 5. hæð á milli kl. 10:30-11:00 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.
Vinsamlegast bókið tíma á Heilsuveru vegna einkennasýnatöku eða travel.covid.is vegna ferðalaga erlendis.
Nánari upplýsingar um sýnatökur vegna covid.