Fara beint í efnið

Breytingar á símatímum lækna í teymisvinnu á Akureyri

28. október 2022

Frá og með 1. nóvember 2022 verða breytingar á símatímum og heilsuveruskilaboðum lækna í teymisvinnu, eða hjá Vali Helga Kristinssyni, Arngrími Vilhjálmssyni, Kristrúnu Erlu Sigurðardóttur og Hafdísi Ölmu Einarsdóttur.

Læknir

Fyrirkomulagið felst í að hjúkrunarfræðingar teyma hringja í skjólstæðinga sem óskað hafa eftir símaviðtali og í samráði við læknana er leitast við að finna erindinu farveg. Breytingin er gerð til þess skapa fleiri viðtalstíma og þar með svigrúm til að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Teymisvinnan er enn í mótun og mun taka einhvern tíma að innleiða og biðjum við skjólstæðinga að sýna því skilning.
Heilsuveruskilaboðum er svarað eins fljótt og auðið er alla virka daga milli 8-16.