Svæðisskipulag er skipulagsáætlun tveggja eða fleiri sveitarfélaga um sameiginleg hagsmunamál og svæðisbundnar áherslur, svo sem byggðaþróun, samgöngur eða vatnsvernd.
Svæðisskipulag skal taka til svæðis sem myndar heild í landfræðilegu, hagrænu og félagslegu tilliti og getur þannig tekið til landshluta eða annarra stærri heilda.
Skylda er að vinna svæðisskipulag fyrir höfuðborgarsvæðið, en annarsstaðar á landinu er svæðisskipulagsgerð valfrjáls.
Gerð svæðisskipulags
Svæðisskipulagsnefnd
Þar sem vinna á svæðisskipulag koma hlutaðeigandi sveitarstjórnir á fót sameiginlegri svæðisskipulagsnefnd. Hún annast vinnslu, kynningu og afgreiðslu svæðisskipulags undir yfirstjórn sveitarstjórnanna.
Svæðisskipulagsnefnd skal jafnframt starfrækt þar sem svæðisskipulag er í gildi. Hún sér um framfylgd og breytingar á svæðisskipulaginu og metur, í upphafi kjörtímabils, hvort tilefni er til að endurskoða svæðisskipulag.
Svæðisskipulag er háð samþykki allra hlutaðeigandi sveitarstjórna og staðfestingu HMS.
Kostnaður við gerð svæðisskipulags greiðist til helminga af hlutaðeigandi sveitarfélögum og Skipulagssjóði. Umsókn um kostnaðarframlag úr Skipulagssjóði má nálgast á þjónustusíðum.
Ferli við gerð svæðisskipulags
Í upphafi tekur svæðisskipulagsnefnd saman lýsingu fyrir skipulagsverkefnið. Þar er gerð grein fyrir tildrögum og áherslum skipulagsvinnunnar og hvernig fyrirhugað er að standa að skipulagsgerðinni.
Lýsing er samþykkt af hlutaðeigandi sveitarstjórnum.
Lýsingin er kynnt opinberlega og almenningi gefinn kostur að koma ábendingum á framfæri við svæðisskipulagsnefnd í gegnum Skipulagsgátt. Samhliða er leitað umsagnar Skipulagsstofnunar og annarra umsagnaraðila.
Tillaga skal unnin í samráði við íbúa og aðra hagsmunaaðila.
Svæðisskipulagsnefnd vinnur tillögu að svæðisskipulagi í samræmi við lýsingu skipulagsverkefnisins og með hliðsjón af þeim ábendingum sem borist hafa frá almenningi og umsagnaraðilum á fyrri stigum.
Umhverfisáhrif eru metin og niðurstöður umhverfismats nýttar við endanlega mótun skipulagstillögunnar.
Nefndin útbýr endanlega tillögu að svæðisskipulagi
Tillaga er samþykkt af viðkomandi sveitarfélögum
Tillaga er send Skipulagsstofnun til umsagnar.
Tillaga er síðan formlega auglýst og almenningi gefinn kostur á að koma athugasemdum á framfæri í gegnum Skipulagsgátt.
Svæðisskipulagsnefnd bregst við þeim athugasemdum sem komið hafa fram við kynningu á tillögu að svæðisskipulagi og gengur frá endanlegu svæðisskipulagi.
Svæðisskipulag tekur gildi þegar það hefur verið samþykkt af hlutaðeigandi sveitarstjórnum og staðfest af Skipulagsstofnun.
Endanleg gögn og afgreiðsla eru birt á Skipulagsgátt.
Leiðbeiningar