Um HMS
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) vinnur að því að móta örugg, sjálfbær og vel skipulögð samfélög. Hjá stofnuninni starfar fjölbreyttur hópur sérfræðinga sem vinnur að húsnæðismálum, mannvirkjagerð, skipulagi, brunavörnum og rafmagnsöryggi, auk þess að þróa mikilvægar upplýsingar og greiningar um fasteignir og húsnæðismarkaðinn.