Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun Forsíða
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun Forsíða

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Aðalskipulag

Aðalskipulag er skipulagsáætlun sem nær til alls lands sveitarfélags. Þar er sett fram stefna og ákvarðanir sveitarstjórnar um framtíðarnotkun lands og fyrirkomulag byggðar.

Stefna sem sett er fram í aðalskipulagi er útfærð nánar í deiliskipulagi fyrir einstök hverfi eða reiti.

Á Skipulagsgátt má finna upplýsingar um skipulag í vinnslu.

Gerð aðalskipulags

  • Sveitarstjórn ber ábyrgð á gerð aðalskipulags. Skipulagsnefnd sveitarfélags annast gerð aðalskipulags í umboði sveitarstjórnar.

    • Í upphafi kjörtímabils skal sveitarstjórn taka afstöðu til þess hvort endurskoða skuli gildandi aðalskipulag.

    • Aðalskipulag tekur gildi þegar það hefur verið samþykkt af sveitarstjórn og staðfest af Skipulagsstofnun.

    • Kostnaður við gerð aðalskipulags greiðist til helminga af hlutaðeigandi sveitarfélagi og Skipulagssjóði. Umsókn um kostnaðarframlag úr Skipulagssjóði má nálgast á þjónustusíðum HMS.

Stafrænt aðalskipulag

Aðalskipulag er unnið með stafrænum hætti. Gerð stafræns aðalskipulags felur í sér að skipulagsgögn eru unnin með samræmdum hætti í landupplýsingakerfi. Þegar aðalskipulag er lagt fram til afgreiðslu HMS er gögnum skilað á stafrænu formi auk hefðbundinna skipulagsgagna.

Aðalskipulag er sett fram í skipulagsgreinargerð og á skipulagsuppdráttum eins og áður. Nánari upplýsingar um landupplýsingar og stafrænt aðalskipulag.

Ferli við gerð aðalskipulags

Leiðbeiningar