Skipulagsfulltrúar og -ráðgjafar
Skipulagsfulltrúar
Skipulagsfulltrúar eru sérhæfðir starfsmenn sveitarfélaga sem annast verkefni á sviði skipulagsmála. Skipulagsfulltrúar:
Starfa með skipulagsnefndum sveitarfélaga.
Hafa umsjón með skipulagsgerð á vegum sveitarfélagsins.
Hafa eftirlit með að framkvæmdir séu í samræmi við skipulag og útgefin leyfi.
Skipulagsfulltrúi getur jafnframt verið byggingarfulltrúi sveitarfélags. Sveitarfélög, tvö eða fleiri, geta ráðið sameiginlegan skipulagsfulltrúa.
Skipulagsráðgjafar
HMS heldur úti lista yfir skipulagsráðgjafa, sem heimilt er að vinna skipulag.
Uppfylla þarf ákveðin skilyrði um menntun og/eða starfsreynslu til að sinna gerð skipulagsáætlana, en þau eru tilgreind í 7. grein skipulagslaga.