Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun Forsíða
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun Forsíða

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Landsskipulagsstefna

Landsskipulag

Landsskipulagsstefna felur í sér stefnu í skipulagsmálum fyrir landið í heild til leiðbeiningar fyrir skipulagsgerð sveitarfélaga og aðra áætlanagerð um þróun byggðar og landnýtingu. HMS heldur úti vef þar sem nálgast má upplýsingar um landsskipulagsstefnu, svo sem um gildandi stefnu og framfylgd hennar auk upplýsinga um ferli við mótun nýrrar landsskipulagsstefnu.

Vefur landsskipulagsstefnu

Á landsskipulag.is má nálgast nánari upplýsingar um landsskipulagsstefnu

Fara á landsskipulag.is

Skipulag haf- og strandsvæða

Stefna um skipulag haf- og strandsvæða er sett fram í landsskipulagsstefnu. Í stefnu um skipulag haf- og strandsvæða er einnig lagður grunnur að gerð strandsvæðisskipulags.

Svæðisráð skipuð af fulltrúum ríkis og sveitarfélaga bera ábyrgð á gerð skipulagsins en HMS vinnur að gerð þess og framfylgd eftir að skipulag tekur gildi, í umboði svæðisráðs.

HMS hefur jafnframt eftirlit með framkvæmd laga um skipulag haf- og strandsvæða og heldur úti vef þar sem nálgast má almennar upplýsingar um skipulag á haf- og strandsvæðum, strandsvæðisskipulag í gildi auk upplýsinga um ferlið við mótun strandsvæðisskipulags hverju sinni.

Vefur haf- og strandsvæðisskipulags

Á hafskipulag.is má nálgast nánari upplýsingar um skipulag á haf- og strandsvæðum og strandsvæðisskipulag.

Fara á hafskipulag.is