Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun Forsíða
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun Forsíða

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun

Stafrænt skipulag og landupplýsingar

HMS heldur utan um þróun og innleiðingu stafræns skipulags og landfræðilegra gagnagrunna um skipulag á haf- og strandsvæðum og mat á umhverfisáhrifum ásamt þróun og rekstri Skipulagsgáttar, Skipulagsvefsjár og vefsjáa fyrir stafrænt skipulag.

Hér fyrir neðan má nálgast ýmis skipulagstengd gögn á landupplýsingaformi sem HMS heldur utan um auk upplýsinga um gögn annarra aðila sem nýtast við skipulagsgerð.

Stafrænt skipulag

Samkvæmt skipulagslögum skal vinna aðalskipulag og deiliskipulag á stafrænu formi. Það á einnig við um skipulag strandsvæðis samkvæmt lögum um skipulag haf- og strandsvæða. Það felur í sér að skipulagsuppdrættir eru unnir á samræmdan hátt í landupplýsingakerfi.

Stafrænt skipulag er viðbót við önnur hefðbundin skipulagsgögn eins og uppdrætti og greinargerðir. Staðfest og undirritað aðal- og deiliskipulag er, líkt og áður, hin endanlega heimild.

Frá og með 1. júní 2025 skal nýju deiliskipulagi skilað á stafrænu formi.

Skil á stafrænu formi á við um nýtt deiliskipulag sem berst HMS til athugunar eftir auglýsingu skv. 42. gr. skipulagslaga auk hefðbundinna skipulagsgagna. Sömuleiðis þarf að skila stafrænum gögnum fyrir breytingar á deiliskipulagi, verulegar og óverulegar, en aðeins ef viðkomandi deiliskipulag er til fyrir á stafrænu formi í vefsjá.

Hér má nálgast vefsjár og ýmis landupplýsingagögn ásamt leiðbeiningum um gerð stafræns skipulags:

Önnur landupplýsingagögn

Hér má nálgast önnur landupplýsingagögn sem HMS heldur utan um ásamt gögnum annarra aðila sem nýtast við skipulagsgerð.

Gögn annarra aðila

Á Lýsigagnagátt Náttúrufræðistofnunar Íslands má nálgast stafræn landupplýsingagögn opinberra aðila. Meðal þeirra gagna sem nýtast við skipulagsgerð eru:

  • Friðlýst svæði

  • B-hluti náttúruminjaskrár

  • Vatnshlot

  • Vatnasvið

  • Vatnsverndarsvæði

  • Fornleifaskráning

  • Sveitarfélagamörk

  • Vistgerðakort

  • Kortlagning landbúnaðarlands

  • Rammaáætlun