Útlána- og upplýsingadeild
Starfsfólk útlánadeildar sér um nýskráningar viðskiptavina, þjónustu við námsmenn og alla almenna upplýsingagjöf.
Í útlána- og upplýsingadeild sjá bókaverðir um að velja hljóðbækur fyrir lánþega sem þess óska. Þjónustan fer að miklu leyti fram gegnum síma og tölvupóst. Geisladiskar eru sendir þeim lánþegum sem þess óska í pósti, þeim að kostnaðarlausu.
Sumir kjósa að koma á safnið og sækja hljóðbækurnar. Mælst er til þess að lánþegar, sem sækja bækur sínar á safnið, hringi á undan sér til að forðast langa bið.
Símanúmer útlána- og upplýsingadeildar er 54 54 900.