Aðgangur að Hljóðbókasafni Íslands
Fólk sem getur ekki nýtt sér prentað letur getur átt rétt á aðgangi að Hljóðbókasafni Íslands. Í þessum hópi er meðal annars
Lesblint fólk
Blint og sjónskert fólk
Fólk með taugaþroskaraskanir sem ekki getur nýtt sér prentað letur
Skilyrði
Skila þarf inn umsóknareyðublaði ásamt undirrituðu vottorði af fagaðila. Á vottorðinu skal koma skýrt fram ástæða þess að umsækjandi geti ekki nýtt sér prentað letur.
Eingöngu skal skila inn vottorði en ekki greiningunni sjálfri.
Gjöld
Árgjald safnsins er:
2.500 krónur fyrir fullorðna fyrir fullorðna
Frítt fyrir börn undir 18 ára aldri
Krafa er stofnuð í heimabanka lánþega þegar hann hefur verið skráður. Aðgangur er opnaður þegar krafa hefur verið greidd.
Umsóknarferli
Rafrænt
Hægt er að sækja um með rafrænum skilríkjum og jafngildir það undirskrift. Rafræn umsókn barns yngra en 18 ára fer fram í gegnum forsjáraðila. Þegar skráður forsjáraðili sækir um með rafrænum hætti velur hann kennitölu þess barns sem hann er að sækja um fyrir.
Á pappír
Einnig er hægt að sækja um á pappír. Umsókn skal undirrituð og henni skilað til safnsins. Ef umsækjandi er yngri en 18 ára þarf undirskrift forsjáraðila
Umsókn og vottorði skal skila saman.
Þú mátt senda það
Í tölvupósti til hbs@hbs.is
Með almennum pósti til:
Hljóðbókasafn Íslands
Útlánadeild
Digranesvegi 5
200 Kópavogi
Hægt er að óska eftir því að fá eyðublaðið útprentað og heimsent í gegnum hbs@hbs.is