Samhæfingarstöð krabbameinsskimana
Brjóstaskimun
Einkenni frá brjóstum
Finnir þú fyrir einkennum frá brjóstum er ráðlagt að hafa samband við hjúkrunarfræðing hjá 1700, á netspjalli Heilsuveru eða á þinni heilsugæslustöð. Hjúkrunarfræðingur metur einkenni og kemur erindi þínu í réttan farveg, bókar bráðatíma og/eða sendir tilvísun á Brjóstamiðstöð.
Skimun fyrir krabbameini í brjóstum
Skimun fyrir krabbameini í brjóstum er rannsókn fyrir einkennalausar konur. Með reglubundinni skimun er hægt að greina krabbamein eða forstig þess á snemmstigum. Það getur bætt batahorfur og einfaldað meðferð.
Í skimun eru teknar lággeisla röntgenmyndir af brjóstum (e. mammography). Skimunin tekur um 10 mínútur.
Konur 40-69 ára fá boð á tveggja ára fresti
Konur 70-74 ára fá boð á þriggja ára fresti
Konur eldri en 74 ára fá ekki boðsbréf en er velkomið að bóka tíma í skimun
Niðurstöður berast rafrænt á „mínar síður“ á Heilsuveru og island.is innan þriggja vikna.

