Nemendur úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ ásamt kennara sínum, Tinnu Ösp Arnardóttur, komu í heimsókn í Hæstarétt í vikunni. Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, og Linda Ramdani, aðstoðarmaður dómara, tóku á móti þeim, kynntu starfsemi réttarins og réttarkerfið.