Viðskiptaskuldir
Viðskiptaskuldir fela í sér móttöku, bókun, yfirferð, samþykkt og greiðslu reikninga frá birgjum, þar sem tryggt er að reikningar séu rétt skráðir, samþykktir og greiddir á tilsettum tíma.
Þegar ferli rafrænna reikninga er sett upp hjá stofnun er sjálfgefinn ferill eftirfarandi:
Reikningar berast með rafrænum hætti til Orra frá birgjum. Æskilegt er að fulltrúi stofnunar hafi samband við stærstu birgja og kalli eftir reikningum á rafrænu formi.
Reikningar berast frá birgjum til Orra með sjálfvirkum hætti. Eru lesnir inn í AP.
Bókunarvél reynir að setja bókun á reikninga, annars er hann lesinn óbókaður inn
Bókari:
Athugar hvort reikningurinn sé réttur og eigi erindi til stofnunnar
Gengur frá bókun. Hann yfirfer / leiðréttir tillögu bókunarvélar, ef hún er til staðar, tengiliður í stofnun getur breytt viðfangi, vídd og texta í áritun reikninga (sjá leiðbeiningar fyrir starfsmenn stofnunar sem koma að áritun reikninga):
Staðfestir reikning og sendir hann af stað í samþykktarferli
Leitar reglulega uppi reikninga sem hafa stoppað / verið hafnað í ferli
Það er á ábyrgð bókara að tryggja að samþykkt reiknings klárist
Samþykkjandi fær tilkynningu frá Orra um að reikningur bíði samþykktar
Samþykkjandi skráir sig inn í Orra og tekur afstöðu til reiknings:
Ef reikningi er hafnað skal samþykkjandi skrifa ástæðu/athugasemd
Reikningur sem er hafnað fer aftur til bókara, tengiliður í stofnun þarf að óska eftir kreditreikningi eða staðfestingu frá birgja um að það megi fella reikning niður
Samþykktur reikningur fer til gjaldkera sem greiðir reikninginn á tilsettum tíma
Bókunarvél-Orri býr til bókun
Bókunardreifireglur:
Slík regla lýsir því hvernig skipta skuli reikningi milli bókunarstrengja, upphæð reiknings er þá skipt milli þeirra í þeim hlutföllum sem eru tilgreind í reglunni.
Allir reikningar vegna kaupa ríkisins á vöru og þjónustu eiga að vera rafrænir.
Ekki er tekið við PDF reikningum í tölvupósti.
Hvernig á að senda rafrænan reikning?
Rafrænir reikningar eiga að vera á XML-formi og berast í gegnum skeytamiðlara eða PEPPOL-netið. Fjársýsla ríkisins tekur við rafrænum reikningum fyrir hönd flestra ríkisstofnana. Birgjar geta sent reikninga með því að:
Gefa reikning út í eigin bókhaldskerfi og senda hann í gegnum skeytamiðlara
Senda reikning í gegnum PEPPOL-netið
Nota skráningarsíðu Fjársýslunnar, ef þeir eru ekki með bókhaldskerfi
Þjónustuaðilar bókhaldskerfa og skeytamiðlarar geta veitt aðstoð við útgáfu og sendingu rafrænna reikninga.
Hvað er rafrænn reikningur?
Rafrænn reikningur er tölvulesanlegt skjal á XML-formi. Hann uppfyllir tæknilegar kröfur um rafræna reikninga og gerir tölvukerfum kleift að lesa, vinna úr og varðveita reikninga með sjálfvirkum hætti.
Rafrænir reikningar:
Einfalda móttöku og úrvinnslu
Draga úr handavinnu
Auka rekjanleika
Eru umhverfisvænni en pappírsreikningar
Nýtast bæði í viðskiptum við ríkið og á almennum markaði
PDF-skjal sem sent er í tölvupósti telst ekki rafrænn reikningur í þessum skilningi.
Hvað þarf að koma fram á reikningum?
Reikningar til ríkisins þurfa að innihalda nauðsynlegar upplýsingar svo hægt sé að afgreiða þá og greiða.
Á reikningum þarf að koma fram:
Lýsing á vöru eða þjónustu
Verð vöru eða þjónustu
Allur kostnaður sem fellur til
Bankareikningur til að hægt sé að greiða með millifærslu
Gjalddagi
Eindagi á að vera sá sami og gjalddagi
Ekki má bæta við gjöldum sem ekki hefur verið samið um, til dæmis seðilgjöldum eða þjónustugjöldum.
Ef reikningur vísar ekki í pöntun eða verk er æskilegt að fram komi upplýsingar um tengilið eða deild.
Gjaldfrestur
Gjaldfrestur á að vera í samræmi við gildandi samning. Ef enginn samningur hefur verið gerður gilda viðskiptaskilmálar ríkisins.
Greiðslutilkynningar til birgja
Birgjar geta fengið greiðslutilkynningu senda þegar reikningur hefur verið greiddur.
Greiðslutilkynningar eru sendar sem:
PDF-skjal í tölvupósti
XML-skjal fyrir þá sem vilja sjálfvirknivæða móttöku upplýsinga um greiðslur
Kreditreikningur er notaður til að leiðrétta reikning sem hefur þegar verið gefinn út.
Hann getur lækkað eða fellt niður upphæð á fyrri reikningi.
Hvenær á að gefa út kreditreikning?
Kreditreikningur er gefinn út þegar:
vöru er skilað
þjónusta var ekki veitt að fullu
rangt verð var á reikningi
afsláttur vantaði á reikning
reikningur var ranglega gefinn út
of mikið var rukkað
reikningur var gefinn út á rangan aðila
Hvað þarf að koma fram?
Kreditreikningur þarf að vísa í upprunalega reikninginn.
Á honum þarf að koma fram hvaða upphæð á að draga frá eða fella niður.
Reikningsnúmer
Kreditreikningur á að hafa eigið reikningsnúmer.
Hann má ekki hafa sama reikningsnúmer og reikningurinn sem hann vísar í.
Innkaupakort eru ætluð fyrir smærri innkaup hjá stofnunum ríkisins.
Hér eru upplýsingar um innleiðingu, notkun og bókhald innkaupakorta. Verklagsreglurnar voru unnar af Fjársýslunni og Ríkisendurskoðun.
Innkaupakort eru almennt notuð fyrir smærri innkaup.
Óheimilt er að nota innkaupakort fyrir raðgreiðslur. Raðgreiðslur teljast lánsviðskipti og eru aðeins heimilar með samþykki fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Korthafi ber ábyrgð á notkun kortsins og þarf að:
varðveita kvittanir, reikninga og önnur frumgögn
skila gögnum til þess aðila sem sér um reikninga hjá stofnuninni
afla afrits ef kvittun eða reikningur glatast
Mælt er með að korthafi staðfesti með undirskrift að hann beri ábyrgð á notkun innkaupakortsins gagnvart stofnuninni.
Áður en stofnun tekur innkaupakort í notkun þarf að meta þörfina fyrir það.
Við undirbúning þarf að ákveða:
hvaða viðskipti henta fyrir innkaupakort
hvaða deildir nota kortið
hvaða starfsfólk verður korthafar
hver hámarksfjárhæð úttekta verður
Góður undirbúningur stuðlar að öruggri og hagkvæmri notkun innkaupakorta.
Stofnanir þurfa að fylla út millifærsluskjal og senda það til Fjársýslunnar.
Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram í skjalinu:
viðfang
tegund
bókunartákn
kennitala
víddir
lýsing
Millifærsluskjal og fylgigögn skulu berast Fjársýslunni fyrir 8. dag hvers mánaðar á netfangið bokhald@fjs.is. Frumgögn skulu fylgja skilunum.
Stofnun þarf að:
varðveita allar kvittanir og önnur gögn sem sýna sundurliðun innkaupa
tryggja að reikningur eða kvittun liggi fyrir áður en kostnaður er gjaldfærður
afla afrits ef frumgögn glatast
Korthafi ber ábyrgð á úttektum og skal skila fylgiskjölum til ábyrgðaraðila innkaupakorts innan stofnunarinnar.
Í lok hvers mánaðar þarf að yfirfara yfirlit úttekta og staðfesta að kvittun eða reikningur sé til fyrir öllum færslum.
Viðskipti vegna innkaupakorta skulu færð í gegnum viðskiptareikning stofnunar með:
tegund 2216
kennitölu útgefanda kortsins
Færslur eru dagsettar samkvæmt þeim mánuði sem úttekt fór fram.
Stofnun þarf að:
varðveita allar kvittanir og önnur gögn sem sýna sundurliðun innkaupa
tryggja að reikningur eða kvittun liggi fyrir áður en kostnaður er gjaldfærður
afla afrits ef frumgögn glatast
Korthafi ber ábyrgð á úttektum og skal skila fylgiskjölum til ábyrgðaraðila innkaupakorts innan stofnunarinnar.
Í lok hvers mánaðar þarf að yfirfara úttektir samkvæmt greiðsluseðli og staðfesta að kvittun eða reikningur sé til fyrir öllum úttektum.
Bókunartákn eru notuð til að merkja og skilgreina tilteknar bókhaldsfærslur og fjárheimildir. Yfirleitt eru þau tengd ákveðnum tegundalykli eða færsluflokki.
Bókunartákn eru meðal annars notuð fyrir:
skatt- og framtalsskyldar greiðslur
sérstakar virðisaukaskattsfærslur
lánafærslur
fjárfestingarframlag (tegund 2320)
fjárfestingar
hlutafé og stofnfjárframlög
fjárheimildir
Bókunartákn
Bókunartákn | Lýsing |
|---|---|
0 | Almennt, ekki framtalsskylt |
1 | Framtalsskyldar greiðslur til einstaklinga aðrar en staðgreiðsluskyld laun og verktakagreiðslur1 |
22 | Framtalsskyldar verktakagreiðslur |
3 | Framtalsskyldar verktakagreiðslur vegna verka í vinnslu |
4 | Lífeyrissjóðsiðgjald launþega |
6 | Laun og aðrar staðgreiðsluskyldar greiðslur utan staðgreiðslu |
7 | Staðgreiðsla dregin af launum |
8 | Staðaruppbót |
9 | Ekki framtalsskylt |
Kennitala vegna framtalsskyldra greiðslna
Þegar bókunartákn er notað fyrir framtalsskylda greiðslu þarf kennitala þess aðila sem greiðslan er skráð á að fylgja bókunarfærslunni.
Ef bókunartákn 0 eða 9 er notað þarf ekki að skrá kennitölu.
Bókunartákn | Lýsing |
|---|---|
91 | GL, vélrænar færslur |
92 | GL, vélrænar færslur |
95 | GL, handskráðar færslur |
96 | GL, handskráðar færslur |
98 | GL, vélrænar færslur vegna virðisaukaskatts á tölvuþjónustu |
Bókunartákn | Lýsing |
|---|---|
16 | Staða frá fyrra ári |
17 | Ný lán |
18 | Afborganir |
19 | Endurmat |
Athugið:
Aðeins Fjársýslan má bóka með bókunartákni 16
Bókunartákn 19 er aðeins notað hjá ríkissjóði
Ekki má bóka á tegund 2320 nema bókunartákn og rekstrarviðfang fylgi færslunni.
Bókunartákn | Lýsing |
|---|---|
15 | Breytt staða frá fyrra ári |
16 | Flutt staða frá fyrra ári |
17 | Fjárfestingarheimild ársins |
18 | Ráðstöfun fjárfestingarheimildar |
20 | Söluhagnaður |
21 | Gjafir til fjárfestinga |
Gjaldalyklar (5xxxx)
Þegar skilgreindir gjaldalyklar flytja stöðu yfir á verk í vinnslu (tegundalyklar 18011 og 18012) gildir eftirfarandi:
Notað er bókunartákn 22 þegar kostnaður tilheyrir verki í vinnslu
Sjálfvirk keyrsla flytur stöðuna og bókar hana með bókunartákni 23
Eignalyklar (18xxx)
Fyrir eignalykla á bilinu 181-189 er almennt notað bókunartákn 0.
Ef færsla á ekki að flytjast yfir í FA eignakerfið skal nota bókunartákn 9.
Bókunartákn | Lýsing |
|---|---|
16 | Staða frá fyrra ári |
17 | Kaup |
18 | Sala |
19 | Aðrar breytingar, til dæmis arðgreiðslur og gengismunur |
Bókunartákn fjárheimilda sýna uppruna eða tilefni fjárheimildar.
Fjárlög og fjáraukalög
Bókunartákn | Lýsing |
|---|---|
A1 | Fjárlög |
A2 | Fjáraukalög |
A3 | Fjáraukalög 2 |
A4 | Fjáraukalög 3 |
A5 | Fjáraukalög 4 og 5 |
Bókunartákn | Lýsing |
|---|---|
AA | Millifært vegna launa-, gengis- og verðlagsbóta |
AB | Millifært af almennum varasjóði |
AC | Millifært vegna heimildagreinar |
AD | Fjárfestingar og afskriftir |
AE | Heimildir til flýtingar framkvæmda |
AF | Millifært af ráðstöfunarlið ríkisstjórnar |
AH | Millifært milli fjárliða |
AJ | Millifært innan fjárlagaliðar |
AL | Millifært milli tímabila |
AR | Flutt frá fyrra ári |
AS | Breyting vegna fyrra árs |
Nánari skýringar
Bókunartákn A1-A5 eru notuð fyrir fjárheimildir sem samþykktar hafa verið af Alþingi í fjárlögum eða fjáraukalögum.
Bókunartákn AA-AJ, að undanskildu AD, eru notuð þegar ráðuneyti flytja fjárheimildir á milli.
Bókunartákn AD er notað vegna gjaldfærðra afskrifta og ráðstöfunar fjárfestingarheimilda.
Bókunartákn ALer notað þegar fjárheimild er dreift á tímabil samkvæmt rekstraráætlun.
Dæmigert ferli í bókhaldi ríkisaðila er:
Reikningur berst.
Reikningur er yfirfarinn.
Reikningur er samþykktur.
Kostnaður er flokkaður á rétt viðfang og fjárheimild.
Reikningur er bókaður.
Reikningur er greiddur.
Færslan verður hluti af uppgjöri og síðar ársreikningi og ríkisreikningi.
Stofnanir sem stunda virðisaukaskattsskylda starfsemi innheimta virðisaukaskatt af sölu vöru og þjónustu og standa skil á skattinum til ríkissjóðs.
Frekari upplýsingar um virðisaukaskatt má finna á vef Skattsins.
Hvað er risna?
Risna er kostnaður sem stofnun eða embætti stofnar til í þeim tilgangi að sýna gestum, samstarfsaðilum eða öðrum aðilum gestrisni, þakklæti eða viðurkenningu.
Skilyrði fyrir risnu
Eftirfarandi skilyrði þurfa að vera uppfyllt áður en risna er veitt:
Fyrir hendi þarf að vera fullnægjandi tilefni.
Fjárheimild þarf að liggja fyrir.
Fyrirfram þarf að afla skriflegrar heimildar frá forstöðumanni stofnunar eða viðkomandi ráðuneyti.
Risnuheimild
Skila þarf risnuheimild þegar kostnaður er bókaður sem risna.
Alltaf þarf að skila risnuheimild vegna áfengiskaupa.
Risnuheimild er fyllt út á sérstöku eyðublaði sem finna má á upplýsingatorgi.
Frágangur risnureikninga
Við skil á risnureikningum þarf að gæta að eftirfarandi:
Reikningur skal vera sundurliðaður
Reikningurinn þarf að vera skýr og sýna hvaða útgjöld urðu til og umfang þeirra.
Áritun forstöðumanns
Forstöðumaður stofnunar þarf að árita reikninginn. Ef um umfangsmeiri risnu er að ræða skal ríkisstofnun hafa samráð við viðkomandi ráðuneyti.
Skráning tilefnis og þátttakenda
Á reikningi eða fylgiblaði þarf að koma fram:
tilefni risnunnar,
rökstuðningur fyrir kostnaðinum,
hverjir nutu risnunnar,
hvort haft hafi verið samráð við viðkomandi ráðuneyti.
