Viðfang
Viðfang er notað til að halda utan um rekstur, umsvif eða verkefni innan stofnunar.
Bókunarviðfang er notað til að halda utan um rekstur einstakra sviða, deilda eða verkefna innan stofnunar.
Bókunarviðfang er 10 til 14 tölustafir.
Það samanstendur af:
stofnananúmeri
fjárlagaviðfangi
2 til 6 tölustöfum til viðbótar
Áður en bókunarviðfang er stofnað þarf að skoða hvort betra sé að halda utan um verkefnið með víddum í bókhaldinu.
Efnahagsviðfang er notað þegar bókað er á efnahag stofnunar.
Efnahagsviðfang er stofnananúmer með tölustafnum 0 aftan við. Þegar bókað er á efnahagsviðfang eru því notaðir 6 tölustafir.
Dæmi:
Ef stofnananúmer er 12345 er efnahagsviðfangið 123450.
Til eru undantekningar frá þessari reglu.
Hvað má bóka á efnahagsviðfang?
Aðeins má bóka á efnahagstegundir þegar bókað er á efnahagsviðfang.
Efnahagstegundir eru tegundir sem byrja á:
1
2
3
Fjárlagaviðfang er notað til að tengja stofnun við fjárheimild samkvæmt fjárlögum hvers árs.
Fjárlagaviðfang er 3 tölustafir sem bætast aftan við stofnananúmer viðkomandi stofnunar.
Fjárlagaviðfang er einnig yfirviðfang.
Ekki má bóka beint á fjárlagaviðfang.
Stofnun fjárlagaviðfangs
Fjársýslan stofnar fjárlagaviðföng.
Fjárlagaviðföng eru tengd við svokallaðan COFOG-kóða. COFOG-kóði er notaður til að flokka og taka saman útgjöld ríkissjóðs eftir málaflokkum.
Yfirviðfang er sérmerkt viðfangsefni hjá stofnunum þar sem hægt er að draga saman kostnað eftir bókunarviðföngum sem eru undir hverju yfirviðfangi.
Ekki er hægt að bóka á yfirviðföng.
Mikilvægt er þegar yfirviðföng eru stofnuð að þau falli að skipulagi viðkomandi stofnunar.
