Uppbygging bókhalds
Uppbygging bókhalds
Viðfang er notað til að halda utan um rekstur, umsvif eða verkefni innan stofnunar.
Viðfang getur til dæmis vísað til:
sviðs
deildar
verkefnis
ákveðins hluta starfseminnar
Viðfangsnúmer eru eingöngu úr tölustöfum. Fyrstu fimm tölustafirnir eru þeir sömu og í stofnananúmeri viðkomandi stofnunar.
Stofnun viðfangs
Fjársýslan stofnar viðföng að jafnaði.
Áður en viðfang er stofnað þarf að ganga úr skugga um að fjárlagaviðfang sé til staðar.
Við stofnun viðfangs þarf einnig að huga að tengingum sem geta haft áhrif á bókhald, til dæmis tengingum vegna virðisaukaskatts.
Tegundir viðfanga
Viðföngum er skipt í fjóra hluta:
Efnahagsviðfang er notað þegar bókað er á efnahag stofnunar.
Efnahagsviðfang er stofnananúmer með tölustafnum 0 aftan við. Þegar bókað er á efnahagsviðfang eru því notaðir 6 tölustafir.
Dæmi:
Ef stofnananúmer er 12345 er efnahagsviðfangið 123450.
Til eru undantekningar frá þessari reglu.
Hvað má bóka á efnahagsviðfang?
Aðeins má bóka á efnahagstegundir þegar bókað er á efnahagsviðfang.
Efnahagstegundir eru tegundir sem byrja á:
1
2
3
Fjárlagaviðfang er notað til að tengja stofnun við fjárheimild samkvæmt fjárlögum hvers árs.
Fjárlagaviðfang er 3 tölustafir sem bætast aftan við stofnananúmer viðkomandi stofnunar.
Fjárlagaviðfang er einnig yfirviðfang.
Ekki má bóka beint á fjárlagaviðfang.
Stofnun fjárlagaviðfangs
Fjársýslan stofnar fjárlagaviðföng.
Fjárlagaviðföng eru tengd við svokallaðan COFOG-kóða. COFOG-kóði er notaður til að flokka og taka saman útgjöld ríkissjóðs eftir málaflokkum.
Yfirviðfang er sérmerkt viðfangsefni hjá stofnunum þar sem hægt er að draga saman kostnað eftir bókunarviðföngum sem eru undir hverju yfirviðfangi.
Ekki er hægt að bóka á yfirviðföng.
Mikilvægt er þegar yfirviðföng eru stofnuð að þau falli að skipulagi viðkomandi stofnunar.
Bókunarviðfang er notað til að halda utan um rekstur einstakra sviða, deilda eða verkefna innan stofnunar.
Bókunarviðfang er 10 til 14 tölustafir.
Það samanstendur af:
stofnananúmeri
fjárlagaviðfangi
2 til 6 tölustöfum til viðbótar
Áður en bókunarviðfang er stofnað þarf að skoða hvort betra sé að halda utan um verkefnið með víddum í bókhaldinu.
Víddir eru notaðar til að sundurliða bókhald stofnunar nánar. Hægt er að nota víddir til að halda utan um til dæmis:
einstök verkefni
málaflokka
aðra hluta starfseminnar
Stofna þarf víddir sérstaklega fyrir hverja stofnun. Fjársýslan sér um að stofna víddir fyrir stofnanir.
Áður en víddir eru stofnaðar þarf að huga vel að uppsetningu þeirra. Hægt er að nota bókstafi í víddum, en ekki er mælt með því.
Ekki má nota:
séríslenska stafi
punkta
kommur
semikommur
strik
önnur sérstök tákn
Vídd eitt er notuð til að sundurliða bókhald stofnunar nánar.
Hægt er að nota vídd eitt til að halda utan um nánari flokkun, til dæmis ef sundurliða þarf bókakaup eftir:
bókaflokkum
erlendum bókum
innlendum bókum
Vídd eitt gengur þvert á viðföng í bókhaldi stofnunar. Hún er því ekki tengd sérstöku viðfangi eða tegund.
Vídd eitt fyrir bankareikninga
Færslur vegna bankareikninga stofnana þarf að skrá með vídd eitt. Vídd eitt fyrir bankareikninga byrjar á bókstafnum b (litlum staf) og síðan kemur númer bankareiknings.
Dæmi:
Ef bankareikningur er númer 758 er vídd eitt skráð sem b758.
Vídd tvö er aðallega notuð til að halda utan um verkefni sem ganga þvert á viðföng stofnunar.
Vídd tvö er ekki tengd sérstöku viðfangi eða tegund.
Hægt er að nota vídd tvö fyrir verkefni sem margar deildir eða mörg viðföng koma að. Þá er hægt að halda utan um kostnað verkefnisins samhliða því sem kostnaður er færður á viðkomandi deildir eða viðföng.
Vídd þrjú er notuð til að halda utan um kostnað sem er þvert á stofnanir og ráðuneyti. Víddin er ætluð fyrir atburði sem hafa áhrif á samfélagið í heild.
Atburðir sem falla undir vídd þrjú
Vídd þrjú er notuð fyrir:
náttúruhamfarir, til dæmis jarðhræringar, eldgos, skriður og flóð
manngerðar hamfarir, til dæmis hryðjuverk og netárásir
farsóttir og sjúkdóma
þjóðaratkvæðagreiðslu
Uppbygging víddar 3
Vídd þrjú er samsett úr fimm tölustöfum:
einum tölustaf fyrir tegund atburðar
tveimur tölustöfum fyrir ár
tveimur tölustöfum fyrir raðnúmer
Dæmi:
12301 – Jarðhræringar í Grindavík
42301 – Vatnslögn til Vestmannaeyja
32001 – COVID-19
52601 - Þjóðaratkvæðagreiðsla
Bókunartákn eru notuð til að merkja og skilgreina tilteknar bókhaldsfærslur og fjárheimildir. Yfirleitt eru þau tengd ákveðnum tegundalykli eða færsluflokki.
Bókunartákn eru meðal annars notuð fyrir:
skatt- og framtalsskyldar greiðslur
sérstakar virðisaukaskattsfærslur
lánafærslur
fjárfestingarframlag (tegund 2320)
fjárfestingar
hlutafé og stofnfjárframlög
fjárheimildir
Bókunartákn
Bókunartákn | Lýsing |
|---|---|
0 | Almennt, ekki framtalsskylt |
1 | Framtalsskyldar greiðslur til einstaklinga aðrar en staðgreiðsluskyld laun og verktakagreiðslur1 |
22 | Framtalsskyldar verktakagreiðslur |
3 | Framtalsskyldar verktakagreiðslur vegna verka í vinnslu |
4 | Lífeyrissjóðsiðgjald launþega |
6 | Laun og aðrar staðgreiðsluskyldar greiðslur utan staðgreiðslu |
7 | Staðgreiðsla dregin af launum |
8 | Staðaruppbót |
9 | Ekki framtalsskylt |
Kennitala vegna framtalsskyldra greiðslna
Þegar bókunartákn er notað fyrir framtalsskylda greiðslu þarf kennitala þess aðila sem greiðslan er skráð á að fylgja bókunarfærslunni.
Ef bókunartákn 0 eða 9 er notað þarf ekki að skrá kennitölu.
Bókunartákn | Lýsing |
|---|---|
91 | GL, vélrænar færslur |
92 | GL, vélrænar færslur |
95 | GL, handskráðar færslur |
96 | GL, handskráðar færslur |
98 | GL, vélrænar færslur vegna virðisaukaskatts á tölvuþjónustu |
Bókunartákn | Lýsing |
|---|---|
16 | Staða frá fyrra ári |
17 | Ný lán |
18 | Afborganir |
19 | Endurmat |
Athugið:
Aðeins Fjársýslan má bóka með bókunartákni 16
Bókunartákn 19 er aðeins notað hjá ríkissjóði
Ekki má bóka á tegund 2320 nema bókunartákn og rekstrarviðfang fylgi færslunni.
Bókunartákn | Lýsing |
|---|---|
15 | Breytt staða frá fyrra ári |
16 | Flutt staða frá fyrra ári |
17 | Fjárfestingarheimild ársins |
18 | Ráðstöfun fjárfestingarheimildar |
20 | Söluhagnaður |
21 | Gjafir til fjárfestinga |
Gjaldalyklar (5xxxx)
Þegar skilgreindir gjaldalyklar flytja stöðu yfir á verk í vinnslu (tegundalyklar 18011 og 18012) gildir eftirfarandi:
Notað er bókunartákn 22 þegar kostnaður tilheyrir verki í vinnslu
Sjálfvirk keyrsla flytur stöðuna og bókar hana með bókunartákni 23
Eignalyklar (18xxx)
Fyrir eignalykla á bilinu 181-189 er almennt notað bókunartákn 0.
Ef færsla á ekki að flytjast yfir í FA eignakerfið skal nota bókunartákn 9.
Bókunartákn | Lýsing |
|---|---|
16 | Staða frá fyrra ári |
17 | Kaup |
18 | Sala |
19 | Aðrar breytingar, til dæmis arðgreiðslur og gengismunur |
Bókunartákn fjárheimilda sýna uppruna eða tilefni fjárheimildar.
Fjárlög og fjáraukalög
Bókunartákn | Lýsing |
|---|---|
A1 | Fjárlög |
A2 | Fjáraukalög |
A3 | Fjáraukalög 2 |
A4 | Fjáraukalög 3 |
A5 | Fjáraukalög 4 og 5 |
Bókunartákn | Lýsing |
|---|---|
AA | Millifært vegna launa-, gengis- og verðlagsbóta |
AB | Millifært af almennum varasjóði |
AC | Millifært vegna heimildagreinar |
AD | Fjárfestingar og afskriftir |
AE | Heimildir til flýtingar framkvæmda |
AF | Millifært af ráðstöfunarlið ríkisstjórnar |
AH | Millifært milli fjárliða |
AJ | Millifært innan fjárlagaliðar |
AL | Millifært milli tímabila |
AR | Flutt frá fyrra ári |
AS | Breyting vegna fyrra árs |
Nánari skýringar
Bókunartákn A1-A5 eru notuð fyrir fjárheimildir sem samþykktar hafa verið af Alþingi í fjárlögum eða fjáraukalögum.
Bókunartákn AA-AJ, að undanskildu AD, eru notuð þegar ráðuneyti flytja fjárheimildir á milli.
Bókunartákn AD er notað vegna gjaldfærðra afskrifta og ráðstöfunar fjárfestingarheimilda.
Bókunartákn ALer notað þegar fjárheimild er dreift á tímabil samkvæmt rekstraráætlun.
Fjárlaganúmer er auðkenni fyrir stofnun eða verkefni innan ríkisins. Númerið er notað til að flokka tekjur og útgjöld ríkisins og sýna hvert fjármagn fer.
Fjárlaganúmer eru fimm tölustafir. Fyrstu tveir tölustafirnir vísa til ráðuneytis. Síðustu þrír tölustafirnir vísa til stofnunar eða verkefnis.
Dæmi:
01-271 er fjárlaganúmer Ríkislögmanns.
01 vísar til forsætisráðuneytisins.
271 vísar til Ríkislögmanns.
Hlutverk fjárlaganúmers
Fjárlaganúmer hjálpar til við að:
halda utan um fjárheimildir
flokka tekjur og útgjöld
fylgjast með því hvernig opinbert fé er notað
skýra ábyrgð á rekstri stofnana og verkefna
Ráðuneyti bera ábyrgð á að útgjöld verkefna og stofnana fari ekki fram úr fjárheimildum. Forstöðumenn stofnana bera ábyrgð á rekstri sinna stofnana gagnvart viðkomandi ráðuneyti.
Fjárhagskerfið heldur utan um bókhald ríkissjóðs og stofnana ríkisins.
Kerfið er notað við:
uppgjörsvinnu vegna ríkisreiknings
upplýsingagjöf um fjárhag ríkisins
skráningu eigna
Eignaskráningarkerfi er hluti af fjárhagskerfinu. Það heldur utan um varanlega rekstrarfjármuni stofnana.
Hvað sýnir fjárhagur?
Fjárhagur getur meðal annars sýnt:
tekjur
gjöld
eignir
skuldir
sparnað
fjárfestingar
