Fara beint í efnið
Fjársýslan Forsíða
Fjársýslan Forsíða

Fjársýslan

Opnir reikningar ríkisins

Vefurinn Opnir reikningar ríkisins var opnaður í september 2017. Markmið hans er að auka gagnsæi og gera almenningi auðveldara að nálgast upplýsingar um ráðstöfun opinberra fjármuna.

Á vefnum er hægt að skoða upplýsingar um reikninga sem ráðuneyti og ríkisstofnanir í A-hluta ríkissjóðs hafa greitt og eru skráðir í viðskiptaskuldakerfi fjárhags- og mannauðskerfis ríkisins, Orra.

Hægt er að leita í gögnunum eftir:

  • ráðuneyti

  • stofnun

  • birgi

  • tegund kostnaðar

  • tímabili greiðslu

Hvaða greiðslur birtast og hverjar ekki?

Á vefnum eru birtar upplýsingar um greiðslur sem fara í gegnum viðskiptaskuldakerfið vegna reikninga sem tengjast kaupum á vörum og þjónustu.

Greiðslur sem tengast ekki reikningum vegna kaupa á vörum og þjónustu eru ekki birtar eða birtar ópersónugreinanlegar. Það á meðal annars við um:

  • launagreiðslur

  • greiðslur bóta og styrkja

Persónuvernd og takmarkanir á birtingu upplýsinga

Við birtingu upplýsinga á vefnum er tekið mið af lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018, upplýsingalögum nr. 140/2012 og stjórnsýslulögum nr. 37/1993.

Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga takmarka þau lög ekki þann rétt til aðgangs að gögnum sem mælt er fyrir um í upplýsingalögum og stjórnsýslulögum.

Í 9. gr. upplýsingalaga segir hins vegar að óheimilt sé að veita almenningi aðgang að gögnum um einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt og eðlilegt er að fari leynt, nema sá samþykki sem í hlut á. Sambærilegar takmarkanir geta átt við um upplýsingar sem varða mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni fyrirtækja og annarra lögaðila.

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur ítrekað fjallað um rétt almennings til aðgangs að upplýsingum um viðskipti ríkisins við einkaaðila, bæði einstaklinga og lögaðila. Í úrskurðarframkvæmd hefur verið lögð áhersla á ríkan rétt almennings til upplýsinga um ráðstöfun opinberra fjármuna.

Í úrskurðarframkvæmd hefur enn fremur verið fjallað um aðgang að reikningum sem einstaklingar gefa út vegna þjónustu við hið opinbera. Þar hefur verið lagt til grundvallar að einstakur reikningur veiti almennt ekki slíka innsýn í fjármál viðkomandi að rétt sé að takmarka aðgang að honum. Í slíkum tilvikum vega upplýsingar um ráðstöfun opinberra fjármuna þyngra.

Greiðslur til einstaklinga

Í viðskiptaskuldakerfi ríkisins eru einnig skráðar greiðslur til einstaklinga, til dæmis vegna endurgreiðslu kostnaðar, dagpeninga eða kaupa á þjónustu. Við birtingu upplýsinga um slíkar greiðslur er metið hvort upplýsingarnar varði einka- eða fjárhagsmálefni einstaklinga sem sanngjarnt og eðlilegt er að fari leynt, sbr. 9. gr. upplýsingalaga.

Almennt eru ekki birtar upplýsingar um greiðslur til einstaklinga þegar þær tengjast persónulegum eða viðkvæmum málefnum. Ef greiðsla tengist hins vegar atvinnustarfsemi einstaklings, til dæmis þegar einstaklingur veitir þjónustu í atvinnuskyni, geta upplýsingar um viðskiptin verið birtar með hliðsjón af upplýsingarétti almennings um ráðstöfun opinberra fjármuna.

Við birtingu upplýsinga er þess jafnframt gætt að kennitölur eða aðrar persónugreinanlegar upplýsingar séu ekki birtar ef þær tengjast upplýsingum sem þagnarskylda ríkir um samkvæmt lögum.

Síur til að vernda viðkvæmar upplýsingar

Áður en gögn eru birt á vefnum fara þau í gegnum síur. Markmið þeirra er að draga úr hættu á að birtar verði viðkvæmar upplýsingar eða upplýsingar sem geta haft skaðleg áhrif á samkeppni eða öryggi.

Tegund kostnaðar

Sumar bókhaldstegundir eru undanskildar birtingu. Það á t.d. við þegar færslur geta innihaldið viðkvæmar persónuupplýsingar eða upplýsingar um einstaklinga. Dæmi um slíkt er bókhaldstegundin „Læknar, hjúkrunarfræðingar og sjúkraþjálfarar“. Það sama á við um ákveðnar greiðslur sem tengjast fangelsis-, dóms- og varnarmálum.

Kostnaðarstaður (viðfang)

Í bókhaldi ríkisaðila er notað hugtakið viðfang, einnig kallað bókhaldsviðfang. Viðfang er flokkun í fjárhagskerfi sem tengir kostnað eða tekjur við tiltekið verkefni, mál eða rekstrarþátt. Þannig er hægt að greina kostnað sem tengist ákveðnu verkefni, málaflokki eða starfsemi innan stofnunar.

Sum viðföng eru undanskilin birtingu, til dæmis viðföng sem tengjast:

  • málskostnaði í opinberum málum

  • rekstri öryggissvæða

Fjársýslan

Afgreiðslu­tími

Mánudaga-fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-13

Heim­il­is­fang

Katrínartún 6
105 Reykjavík

Kt. 540269-7509

Hafðu samband

Smelltu hér til að hafa samband

Sími: 545 7500