Sóknargjald
Sóknargjald er hluti af tekjuskatti sem rennur til þjóðkirkjusafnaða, skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga.
Sóknargjald er greitt eftir fjölda skráðra meðlima í hverju félagi.
Ákvörðun sóknargjalds
Sóknargjald er ákveðið í fjárlögum á hverju ári.
Við útreikning er miðað við fjölda skráðra meðlima 1. desember árið á undan. Upplýsingar um fjölda meðlima koma frá Þjóðskrá Íslands.
Sóknargjöld eru ákvörðuð samkvæmt lögum nr. 91/1987, með síðari breytingum.
Greiðsla sóknargjalds
Fjársýslan greiðir sóknargjald fyrir 15. dag hvers mánaðar. Ef 15. dagur mánaðar er ekki virkur dagur er greitt næsta virka dag.
