Skuldbindandi samningakerfi
Kerfið skuldbindandi samningar er hluti af stafræna vettvanginum Elfur. Appið kom í stað Excel skjala sem áður voru notuð við að safna saman gögnum um skuldbindandi samninga stofnana.
Með kerfinu er unnt að skrá alla samninga jafnóðum og þeir eru undirritaðir og halda utan um þá á einum stað. Það veitir betri yfirsýn yfir gildandi samninga, samninga í vinnslu og eldri samninga, auk þess sem einfalt er að viðhalda upplýsingum milli ára, til dæmis með því að uppfæra stöðu, framlengja eða segja upp samningum.
Kerfið dregur úr handavinnu og minnkar líkur á villum með því að nýta staðlað gagnaform. Það stuðlar að betri gæðum gagna og skapar áreiðanlegri grunn fyrir greiningu og ákvarðanatöku hjá opinberum aðilum.
Hvaða samninga á að skrá í kerfið?
Alla samninga sem gilda í 30 daga eða lengur, eða þar sem regluleg viðskipti eiga sér stað (t.d. fimm sinnum á ári). Einskiptiskaup eru undanskilin nema verðmæti þeirra sé meira en 21 milljón króna.
Samningstegundir:
Leigusamningur
Áætlaðar greiðslur vegna leigusamnings við Ríkiseignir, aðrar ríkisstofnanir eða einkaaðila
Leigusamningur vegna húsnæðis, bifreiðar, tækja og annarra áþreifanlegra eigna í samræmi við IPSAS 43
Rekstrar- og þjónustusamningur
Áætlaðar greiðslur samkvæmt samningi við verksala um tiltekið rekstrarverkefni eða þjónustu
Styrktar- og samstarfssamningur
Samningur um greiðslur í formi framlaga og styrkja vegna ákveðins verkefnis samkvæmt skilyrðum
Aðrir samningar
Samningar sem falla ekki undir fyrrgreinda flokka eru skráðir í þennan flokk
