Reikningsskilastaðlar og reglur
Reikningsskilaaðferð segir til um hvernig reikningsskilastöðlum er beitt við gerð reikningsskila.
Reikningsskilastaðlar setja reglurnar sem þarf að fylgja. Reikningsskilaaðferð lýsir nánar hvernig þessum reglum er beitt, til dæmis hvernig eignir eru metnar, hvernig kostnaður er færður eða hvenær tekjur eru skráðar.
Með því að nota sömu reikningsskilaaðferðir með samræmdum hætti verða reikningsskilin skýrari og auðveldara að bera þau saman milli ára.
Reikningsskilastaðlar eru reglur um hvernig fjárhagsupplýsingar eru skráðar og birtar í reikningsskilum.
Staðlarnir segja meðal annars til um hvernig eigi að færa og meta eignir, skuldir, tekjur og gjöld. Þeir gera einnig kröfur um hvaða upplýsingar þurfi að koma fram í reikningsskilum.
Markmiðið er að reikningsskil gefi skýra og áreiðanlega mynd af fjárhagsstöðu og afkomu og að hægt sé að bera upplýsingar saman milli ára og milli aðila.
Ríkisreikningur Íslands er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla fyrir opinbera aðila (IPSAS).
IPSAS (International Public Sector Accounting Standards) eru alþjóðlegir reikningsskilastaðlar fyrir opinbera aðila. Staðlarnir eru gefnir út af International Public Sector Accounting Standards Board (IPSASB) og stuðla að samræmdri, gagnsærri og áreiðanlegri upplýsingagjöf um fjármál hins opinbera.
IPSAS byggja að stórum hluta á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum fyrirtækja (IFRS) en eru aðlagaðir að starfsemi opinberra aðila. Þar er meðal annars tekið tillit til skatttekna, þjónustuhlutverks hins opinbera og samfélagslegra skuldbindinga.
Markmið IPSAS er að bæta reikningsskil og styrkja fjármálastjórnun hjá ríkjum, sveitarfélögum og öðrum opinberum aðilum.
Helstu einkenni IPSAS
Staðlar fyrir opinbera aðila
IPSAS eru þróaðir sérstaklega fyrir ríki, sveitarfélög og alþjóðastofnanir.
Reikningsskil á rekstrargrunni
Flestir IPSAS-staðlar byggja á rekstrargrunni (e. accrual basis). Það veitir heildstæðari mynd af eignum, skuldum, tekjum og gjöldum.
Aðlagaðir að opinberri starfsemi
Staðlarnir taka mið af sérstöðu opinberra aðila, svo sem skatttekjum, þjónustuskyldu og samfélagslegum markmiðum.
Gagnsæi og ábyrgð
IPSAS stuðla að betri upplýsingagjöf og auka gagnsæi og ábyrgð í meðferð opinbers fjár.
Hvað er IFAC?
IFAC (International Federation of Accountants) eru alþjóðleg samtök endurskoðenda og reikningshaldssérfræðinga. Hlutverk samtakanna er að efla fagið, styðja þróun alþjóðlegra staðla og styrkja gæði reikningshalds og reikningsskila um allan heim.
IFRS eru alþjóðlegir reikningsskilastaðlar sem fyrirtæki nota við gerð ársreikninga. Markmið þeirra er að tryggja að reikningsskil séu skýr, áreiðanleg og sambærileg milli fyrirtækja og landa.
Staðlarnir skilgreina meðal annars hvernig skrá á eignir, skuldir, tekjur og gjöld og hvernig upplýsingar eiga að birtast í ársreikningi.
