Reikningsskil stofnana
Viðmiðunardagsetningar eru notaðar í tengslum við frágang og lokun bókhaldstímabila við lok hvers mánaðar og í tengslum við árslokauppgjör.
Dagsetningar fyrir hvert ár eru skilgreindar í dagatali fyrir skila- og vinnsludaga vegna mánaðar – og árshlutauppgjöra á vef Fjársýslunnar.
Dagsetningarnar varða meðal annars lokadagsetningar í hverjum mánuði fyrir skráningu fjárheimilda, færslu orlofsskuldbindingar og áætlunar kostnaðar sem tilheyrir tímabilinu en hefur ekki enn verið skráður.
Að auki eru tilgreindar dagsetningar á lokun einstakra kerfishluta í bókhaldskerfi, birgðakerfi og eignaskrá.
Á vef Fjársýslunnar er birtur gátlisti um skil á gögnum og afstemmingar vegna uppgjöra. Um er að ræða ítarlegan gátlista þar sem tilgreind eru almenn atriði og ítarlegar upplýsingar um skil á gögnum tengt ýmsum afstemmingum og stöðu eigna og skulda í lok tímabils.
Tilgangur listans er að tryggja að einstakar stofnanir hafi til reiðu uppgjörsskjöl og gögn ef óskað er tengt endurskoðun og við gerð ríkisreiknings.
Skil fyrir 8. janúar
Skila þarf eftirfarandi gögnum fyrir 8. janúar:
Sjóðstalningarblaði
Sjóðbók ásamt fylgiskjölum og reikningsyfirliti frá banka fyrir hvern bankareikning í vörslu stofnunarinnar
Fylgiskjölum vegna úttekta á innkaupa- og kreditkortum á liðnu ári. Einnig skal skila færslum af færslusíðu innkaupakorts og Excel-skjölum vegna kreditkorta þegar það á við
Ferðauppgjörum eða ferðareikningum
Upplýsingum um stöðu vörubirgða í árslok 2026, ef stofnun heldur birgðir
Mælt er með að stofnanir gefi út reikninga jafnskjótt og tekjur verða til. Almennt ætti ekki að þurfa að bíða með útgáfu reikninga vegna viðskipta sem áttu sér stað í desember 2026 lengur en fram í fyrstu viku janúar 2027.
Lokað verður fyrir útgáfu reikninga í AR 12. janúar 2027.
Skil fyrir 23. janúar
Skila þarf eftirfarandi fyrir 23. janúar:
Tekjur
Lista yfir óbókaða útgefna reikninga, eða afrit útgefinna reikninga, vegna sértekna sem tilheyra tekjum ársins 2026
Gjöld
Lista yfir áætlaðan óframkominn kostnað þegar ljóst er að reikningur berst ekki fyrir lok janúar
Reikningar til greiðslu
Ógreiddir reikningar vegna kaupa á vöru og þjónustu á árinu 2026 þurfa að berast í Orra fyrir 30. janúar svo hægt sé að bóka þá fyrir lokun greiðslukerfisins.
Mælt er með að stofnanir hvetji birgja til að senda reikninga um leið og viðskipti eiga sér stað.
Verk í vinnslu
Stofnanir skulu skila sundurliðun á stöðu verka í vinnslu. Sundurliðunin þarf að sýna kostnað fyrir hvert einstakt verkefni.
Athugið að eignaskrá lokar einnig 20. janúar 2027. Beiðnir um skráningu eigna þurfa því að berast fyrir 8. janúar.
Mælt er með að eignir séu skráðar um leið og framkvæmd lýkur og eign hefur verið tekin í notkun. Við ársuppgjör þarf jafnframt að upplýsa um áætlaðan tíma fyrir lok verks eða hvenær það verður tekið í notkun.
Skil fyrir 25. janúar
Skila þarf:
Millifærslubeiðnum
Leiðréttingarbeiðnum, þegar við á
