Reikningsskil og uppgjör
Ríkisreikningur er ársreikningur ríkisins. Hann sýnir afkomu og fjárhagsstöðu ríkisins á hverju ári og hvernig opinberum fjármunum hefur verið ráðstafað.
Ríkisreikningur er gerður samkvæmt lögum um opinber fjármál og byggir á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum fyrir opinbera aðila (IPSAS).
Hvað er í ríkisreikningi?
Ríkisreikningur skiptist í þrjá hluta sem veita mismunandi yfirsýn yfir fjármál ríkisins.
Ríkið í heild
Fyrsti hluti ríkisreiknings er samstæðureikningur ríkisins í heild.
Þar eru meðal annars:
afkoma ríkisins
efnahagur
sjóðstreymi
breytingar á eigin fé
skýringar við reikningsskilin
Samstæðan nær til ríkisaðila í A-, B- og C-hluta. Viðskipti milli aðilanna eru felld út þannig að reikningurinn gefi heildarmynd af fjárhag ríkisins.
A-hluti ríkissjóðs
Annar hluti ríkisreiknings er samstæðureikningur A-hluta ríkissjóðs. Þar eru birt sömu meginyfirlit og í samstæðureikningi ríkisins, ásamt skýringum.
A-hluti skiptist í A1-, A2- og A3-hluta. Flestir ríkisaðilar tilheyra A1-hluta, þar sem starfsemi er að mestu fjármögnuð með fjárveitingum ríkisins.
Séryfirlit A1-hluta
Þriðji hlutinn inniheldur séryfirlit og sundurliðanir fyrir A1-hluta ríkissjóðs.
Þar má meðal annars finna nánari upplýsingar um:
afkomu
efnahag
sjóðstreymi
A1-hluti nær til starfsemi sem er að mestu fjármögnuð með skatttekjum, lögbundnum þjónustutekjum og framlögum og kemur fram í fjárlögum.
Hlutverk ríkisreiknings
Ríkisreikningur veitir Alþingi, stjórnvöldum og almenningi yfirsýn yfir fjármál ríkisins og niðurstöður reksturs þess á hverju ári.
Mánaðaryfirlit fyrir A1 - hluta ríkissjóðs eru gefin út ársfjórðungslega byggt á 61. gr. laga nr. 123/2015 um opinber fjármál. Mánaðaryfirlit byggir á uppgjöri Fjársýslu ríkisins og sýnir rekstur og efnahag A1 - hluta ríkissjóðs innan ársins til loka viðkomandi ársfjórðungs. Mánaðaryfirlit sýnir samanburð á fjárheimildum og útgjöldum eftir málefnasviðum og málaflokkum.
Mánaðaryfirlit samanstendur af eftirfarandi yfirlitum:
Yfirlit um afkomu
Efnahagsreikningur
Sjóðsstreymi
Sundurliðun ríkistekna
Yfirlit yfir málefnasvið
Yfirlit yfir málefnasvið skipt niður á eðli útgjalda
Yfirlit yfir hagræna skiptingu niður á málefnasvið
Yfirlit yfir sundurliðun málaflokka
Lánayfirlit
Mánaðaryfirlit gefur upplýsingar um afkomu ríkissjóðs á grundvelli innheimtna tekna og gjaldfærðra gjalda á tímabilinu. Áætlanatölur í mánaðaryfirliti byggja á samþykktum rekstraráætlunum ríkisaðila og áætlaðri dreifingu tekna innan ársins.
Mánaðaryfirlitin taka ekki að fullu til ýmissa fjárskuldbindinga og krafna sem falla til á árinu, bæði á tekju- og gjaldahlið ef þær hafa ekki áhrif á greiðslur úr ríkissjóði en þær eru færðar í uppgjör ríkissjóðs í árslok. Hlutdeildartekjur eru ekki færðar í mánaðaryfirlit en eru færðar í uppgjör ríkissjóðs í árslok.
Séryfirlit í ríkisreikningi fjalla um A1-hluta ríkissjóðs og veita nánari upplýsingar um ríkisfjármál.
Í séryfirlitum má meðal annars finna upplýsingar um afkomu, efnahagsstöðu og sjóðstreymi A1-hlutans. Þar eru einnig birtar samanburðartölur frá fyrra ári.
Ekki er unnt að birta sambærilegar samanburðartölur úr fjárlögum og fjáraukalögum þar sem afkoma er ekki sett fram á sama grunni.
Fjárlög eru unnin samkvæmt GFS-hagskýrslustaðli en ríkisreikningur samkvæmt IPSAS-reikningsskilastaðli. Þótt staðlarnir séu að mörgu leyti sambærilegir eru nokkur mikilvæg frávik í framsetningu og mælingu fjárhagsupplýsinga. Afkoma ríkissjóðs samkvæmt IPSAS er því ekki beint samanburðarhæf við fjárlög og fjáraukalög.
Í einu séryfirlitanna er gerð grein fyrir helstu aðlögunum á milli þessara framsetninga.
Séryfirlit veita einnig upplýsingar um:
ríkistekjur eftir tekjuflokkum,
útgjöld eftir málefnasviðum og málaflokkum,
samandreginn rekstur og efnahag ríkisaðila,
fjárveitingar til rekstrar og fjárfestinga eftir málaflokkum og ríkisaðilum,
millifærslur fjárheimilda,
skattastyrki,
markaðar tekjur,
sölu varanlegra rekstrarfjármuna.
Einnig eru birtar upplýsingar um skuldbindandi langtímasamninga ríkisaðila í A1-hlutanum og ráðstöfun árslokastöðu vegna flutnings fjárheimilda milli ára.
Uppsetning, umfang og röð séryfirlita getur breyst milli ára í samræmi við framsetningu ríkisreiknings og þá upplýsingagjöf sem birt er hverju sinni.
Ársskýrsla veitir yfirlit yfir útgjöld, fjárveitingar og árangur innan málefnasviða ráðherra á liðnu ári. Í henni er gerð grein fyrir því hvernig opinberu fé hefur verið ráðstafað, hvernig útgjöld hafa þróast í samanburði við fjárheimildir fjárlaga og hvaða árangur hefur náðst í samræmi við sett markmið og aðgerðir.
Samkvæmt lögum nr. 123/2015 um opinber fjármál birta ráðherrar ársskýrslu um málefnasvið sín. Þar skal meðal annars greina frá niðurstöðu útgjalda innan málefnasviða og málaflokka, flutningi fjárheimilda, fjárveitingum til einstakra ríkisaðila og verkefna, auk þess sem lagt er mat á ávinning af ráðstöfun fjármuna með tilliti til settra markmiða.
Samstæðuuppgjör er fjárhagsyfirlit þar sem reikningsskil ríkissjóðs og þeirra ríkisaðila sem tilheyra samstæðunni eru sameinuð í eitt heildaruppgjör. Þar eru eignir, skuldir, tekjur og gjöld færð saman til að gefa heildstæða mynd af fjárhag ríkisins.
Ríkisreikningur er samstæða A-, B- og C-hluta ríkisaðila.
Ríkisreikningur tekur til allrar starfsemi ríkisins og skiptist í A-, B- og C-hluta.
Flokkunin endurspeglar eðli starfseminnar, fjármögnun hennar og tengsl við ríkissjóð.
A-, B- og C-hlutar ríkisins
A-hluti nær til kjarnastarfsemi ríkisins og þeirra aðila sem starfa innan ramma ríkissjóðs. A-hlutanum er skipt í þrjá flokka:
A1-ríkisstofnanir
A1-ríkisstofnanir eru hluti af beinum rekstri ríkisins.Helstu einkenni:
Hafa ekki sjálfstæða fjárhagsstöðu.
Tekjur og gjöld færast beint í ríkissjóð.
Starfa innan fjárheimilda sem Alþingi ákveður.
A2-ríkisstofnanir
A2-ríkisstofnanir hafa meira fjárhagslegt sjálfstæði en A1-stofnanir en eru áfram í eigu og undir stjórn ríkisins.Helstu einkenni:
Hafa að hluta eigin tekjur.
Halda oft eigið bókhald.
Standa að verulegu leyti undir rekstri sínum með eigin tekjum.
Hafa sjálfstæðari rekstur en A1-stofnanir.
A3-ríkisaðilar
A3-ríkisaðilar starfa að jafnaði á markaðslegum forsendum en eru áfram hluti af A-hluta ríkisaðila.Helstu einkenni:
Hafa sjálfstæðan fjárhag.
Halda eigin reikningsskil.
Starfa að mestu á markaði.
B-hluti nær til sjálfstæðra opinberra stofnana, sjóða og annarra aðila sem eru undir stjórn ríkisins en reka starfsemi sína að mestu með eigin tekjum.Helstu einkenni:
Halda sjálfstæð reikningsskil
Hafa eigin tekjulindir
Eru ekki hluti af daglegum rekstri ríkissjóðs
C-hluti nær meðal annars til félaga í meirihlutaeigu ríkisins sem starfa á markaði.Helstu einkenni:
Starfa á eigin ábyrgð
Hafa aðskilinn fjárhag frá ríkissjóði
Halda eigin reikningsskil
Geta greitt arð til ríkisins sem eiganda
