Reikningar og greiðslur
Viðskiptaskuldir fela í sér móttöku, bókun, yfirferð, samþykkt og greiðslu reikninga frá birgjum, þar sem tryggt er að reikningar séu rétt skráðir, samþykktir og greiddir á tilsettum tíma.
Þegar ferli rafrænna reikninga er sett upp hjá stofnun er sjálfgefinn ferill eftirfarandi:
Reikningar berast með rafrænum hætti til Orra frá birgjum. Æskilegt er að fulltrúi stofnunar hafi samband við stærstu birgja og kalli eftir reikningum á rafrænu formi.
Reikningar berast frá birgjum til Orra með sjálfvirkum hætti. Eru lesnir inn í AP.
Bókunarvél reynir að setja bókun á reikninga, annars er hann lesinn óbókaður inn
Bókari:
Athugar hvort reikningurinn sé réttur og eigi erindi til stofnunnar
Gengur frá bókun. Hann yfirfer / leiðréttir tillögu bókunarvélar, ef hún er til staðar, tengiliður í stofnun getur breytt viðfangi, vídd og texta í áritun reikninga (sjá leiðbeiningar fyrir starfsmenn stofnunar sem koma að áritun reikninga):
Staðfestir reikning og sendir hann af stað í samþykktarferli
Leitar reglulega uppi reikninga sem hafa stoppað / verið hafnað í ferli
Það er á ábyrgð bókara að tryggja að samþykkt reiknings klárist
Samþykkjandi fær tilkynningu frá Orra um að reikningur bíði samþykktar
Samþykkjandi skráir sig inn í Orra og tekur afstöðu til reiknings:
Ef reikningi er hafnað skal samþykkjandi skrifa ástæðu/athugasemd
Reikningur sem er hafnað fer aftur til bókara, tengiliður í stofnun þarf að óska eftir kreditreikningi eða staðfestingu frá birgja um að það megi fella reikning niður
Samþykktur reikningur fer til gjaldkera sem greiðir reikninginn á tilsettum tíma
Bókunarvél-Orri býr til bókun
Bókunardreifireglur:
Slík regla lýsir því hvernig skipta skuli reikningi milli bókunarstrengja, upphæð reiknings er þá skipt milli þeirra í þeim hlutföllum sem eru tilgreind í reglunni.
Allir reikningar vegna kaupa ríkisins á vöru og þjónustu eiga að vera rafrænir.
Ekki er tekið við PDF reikningum í tölvupósti.
Hvernig á að senda rafrænan reikning?
Rafrænir reikningar eiga að vera á XML-formi og berast í gegnum skeytamiðlara eða PEPPOL-netið. Fjársýsla ríkisins tekur við rafrænum reikningum fyrir hönd flestra ríkisstofnana. Birgjar geta sent reikninga með því að:
Gefa reikning út í eigin bókhaldskerfi og senda hann í gegnum skeytamiðlara
Senda reikning í gegnum PEPPOL-netið
Nota skráningarsíðu Fjársýslunnar, ef þeir eru ekki með bókhaldskerfi
Þjónustuaðilar bókhaldskerfa og skeytamiðlarar geta veitt aðstoð við útgáfu og sendingu rafrænna reikninga.
Hvað er rafrænn reikningur?
Rafrænn reikningur er tölvulesanlegt skjal á XML-formi. Hann uppfyllir tæknilegar kröfur um rafræna reikninga og gerir tölvukerfum kleift að lesa, vinna úr og varðveita reikninga með sjálfvirkum hætti.
Rafrænir reikningar:
Einfalda móttöku og úrvinnslu
Draga úr handavinnu
Auka rekjanleika
Eru umhverfisvænni en pappírsreikningar
Nýtast bæði í viðskiptum við ríkið og á almennum markaði
PDF-skjal sem sent er í tölvupósti telst ekki rafrænn reikningur í þessum skilningi.
Hvað þarf að koma fram á reikningum?
Reikningar til ríkisins þurfa að innihalda nauðsynlegar upplýsingar svo hægt sé að afgreiða þá og greiða.
Á reikningum þarf að koma fram:
Lýsing á vöru eða þjónustu
Verð vöru eða þjónustu
Allur kostnaður sem fellur til
Bankareikningur til að hægt sé að greiða með millifærslu
Gjalddagi
Eindagi á að vera sá sami og gjalddagi
Ekki má bæta við gjöldum sem ekki hefur verið samið um, til dæmis seðilgjöldum eða þjónustugjöldum.
Ef reikningur vísar ekki í pöntun eða verk er æskilegt að fram komi upplýsingar um tengilið eða deild.
Gjaldfrestur
Gjaldfrestur á að vera í samræmi við gildandi samning. Ef enginn samningur hefur verið gerður gilda viðskiptaskilmálar ríkisins.
Greiðslutilkynningar til birgja
Birgjar geta fengið greiðslutilkynningu senda þegar reikningur hefur verið greiddur.
Greiðslutilkynningar eru sendar sem:
PDF-skjal í tölvupósti
XML-skjal fyrir þá sem vilja sjálfvirknivæða móttöku upplýsinga um greiðslur
Kreditreikningur er notaður til að leiðrétta reikning sem hefur þegar verið gefinn út.
Hann getur lækkað eða fellt niður upphæð á fyrri reikningi.
Hvenær á að gefa út kreditreikning?
Kreditreikningur er gefinn út þegar:
vöru er skilað
þjónusta var ekki veitt að fullu
rangt verð var á reikningi
afsláttur vantaði á reikning
reikningur var ranglega gefinn út
of mikið var rukkað
reikningur var gefinn út á rangan aðila
Hvað þarf að koma fram?
Kreditreikningur þarf að vísa í upprunalega reikninginn.
Á honum þarf að koma fram hvaða upphæð á að draga frá eða fella niður.
Reikningsnúmer
Kreditreikningur á að hafa eigið reikningsnúmer.
Hann má ekki hafa sama reikningsnúmer og reikningurinn sem hann vísar í.
Innkaupakort eru ætluð fyrir smærri innkaup hjá stofnunum ríkisins.
Hér eru upplýsingar um innleiðingu, notkun og bókhald innkaupakorta. Verklagsreglurnar voru unnar af Fjársýslunni og Ríkisendurskoðun.
Bókunartákn eru notuð til að merkja og skilgreina tilteknar bókhaldsfærslur og fjárheimildir. Yfirleitt eru þau tengd ákveðnum tegundalykli eða færsluflokki.
Bókunartákn eru meðal annars notuð fyrir:
skatt- og framtalsskyldar greiðslur
sérstakar virðisaukaskattsfærslur
lánafærslur
fjárfestingarframlag (tegund 2320)
fjárfestingar
hlutafé og stofnfjárframlög
fjárheimildir
Dæmigert ferli í bókhaldi ríkisaðila er:
Reikningur berst.
Reikningur er yfirfarinn.
Reikningur er samþykktur.
Kostnaður er flokkaður á rétt viðfang og fjárheimild.
Reikningur er bókaður.
Reikningur er greiddur.
Færslan verður hluti af uppgjöri og síðar ársreikningi og ríkisreikningi.
Viðskiptareikningar
Viðskiptareikningar innihalda kröfur vegna sölu á vöru eða þjónustu sem greiðast innan eins árs. Hér falla einnig undir aðrar almennar skammtímakröfur sem ekki eiga heima í öðrum flokkum.
Viðskiptakröfur
Tegund | Lýsing |
|---|---|
1210 | Ríkissjóður |
12101 | Ríkissjóður vegna orlofsskuldbindinga |
1211 | Ríkisstofnanir í A-hluta |
12134 | Ríkisaðilar í B-hluta |
12135 | Ríkisaðilar í C-hluta |
1214 | Sveitarfélög |
1215 | Fyrirtæki og atvinnurekendur |
1216 | Einstaklingar, félög og samtök |
1218 | Erlendir aðilar |
1219 | Aðrir aðilar |
Athugið að viðskiptareikningur við ríkissjóð vegna rekstrar er bókaður á tegundir 1310x.
Þessi flokkur er fyrst og fremst ætlaður fyrir Fjársýslu ríkisins. Hér eru færðar kröfur sem tengjast innflutningi og eru flokkaðar eftir tegund viðskiptamanns.
Hér eru færð öll lán sem eru veitt til eins árs eða skemmri tíma samkvæmt sérstökum lánasamningi, þar á meðal víxlar. Lán eru skráð eftir kennitölu og lánsnúmeri.
Afskriftarsjóður er notaður til að færa niður viðskiptakröfur sem talið er líklegt að innheimtist ekki að fullu. Krafan helst þó skráð þar til endanlega liggur fyrir að hún sé töpuð. Þá er hún afskrifuð samkvæmt gildum reglum.
Fylgjast þarf reglulega með stöðu viðskiptareikninga og staðfesta að þeir séu rétt skráðir. Að jafnaði ættu viðskiptareikningar ekki að vera óhreyfðir lengur en eitt ár. Ef þörf er á leiðréttingum skal hafa samband við viðkomandi stofnun og meta hvort afskrift komi til greina.
Óheimilt er að afskrifa stöðu á viðskiptareikningi án samþykkis Ríkisendurskoðunar. Stofnun þarf að óska eftir heimild með formlegri erindisgerð.
Stofnanir sem nýta greiðsluþjónustu geta fengið Fjársýslu ríkisins til að gefa út reikninga fyrir sína hönd. Slíkir reikningar eru bókaðir sem viðskiptakrafa á tegund 12176 þar til þeir hafa verið greiddir.
Aldursgreining sýnir ógreidda reikninga eftir því hversu langur tími er liðinn frá gjalddaga þeirra. Greiningin er mikilvæg fyrir innheimtu, áhættumat og ákvörðun um niðurfærslu eða afskrift krafna.
