Mælaborð Fjársýslunnar leiðbeiningar fyrir stjórnarráðsnotendur
Hvernig kemst ég inn á mælaborðin?
Opnaðu vefslóðina: https://app.powerbi.com/
Veldu Apps í valmyndinni og smelltu síðan á Get app (sjá mynd 1).
Í næstu valmynd velur þú Organizational apps. Þar birtast þau öpp frá Fjársýslunni sem þú hefur aðgang að, í rauðmerktu svæði á skjánum (sjá mynd 2).
Til að setja upp og opna appið smellir þú á viðkomandi app.
Öpp sem þú hefur sótt bætast sjálfkrafa við listann þinn yfir öpp, eins og sést á mynd 1 (t.d. Fjársýslan: Mannauður, Fjársýslan: Fjárhagur).
Í appinu finnur þú þau mælaborð og gögn sem ábyrgðarsvið í Orra hafa veitt þér réttindi að.
Einnig er hægt að nota appið og mælaborðin í gegnum Microsoft Teams (sjá mynd 3).
Vantar þig aðstoð?
Smelltu hér til að fá aðstoð sérfræðinga Fjársýslunnar
Mynd 1 - Yfirlit yfir uppsett öpp

Mynd 2 - Yfirlit yfir Organizational öpp sem hægt er að sækja

Mynd 3 - PowerBI í Microsoft Teams

