Persónuverndaryfirlýsing
1. Um persónuverndaryfirlýsinguna
Fjársýsla ríkisins sér um fjármál ríkisins í samræmi við 64 gr. laga um opinber fjármál 2015/123.
Fjársýslu ríkisins er umhugað um persónuvernd og öryggi gagna sem hún meðhöndlar. Markmið þessarar persónuverndaryfirlýsingar er að veita upplýsingar um hvernig Fjársýsla ríkisins vinnur persónuupplýsingar, í hvaða tilgangi upplýsingarnar eru notaðar, á hvaða heimild vinnslan byggist og hvaða réttindi einstaklingar eiga samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð (ESB) 2016/679 (GDPR). Allar fyrirspurnir um persónuvernd skal senda beint til Persónuverndarfulltrúa Fjársýslunnar á netfangið personuvernd@fjs.is. Hann mun svara öllum fyrirspurnum um meðhöndlun persónuupplýsinga og persónuverndaryfirlýsingar Fjársýslunnar.
Allar upplýsingar um einstaklinga, hvort sem þær koma frá þeim sjálfum, opinberum aðila eða yfirvöldum eru meðhöndlaðar samkvæmt lögum 2018/90 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679.
Persónuverndaryfirlýsing er endurskoðuð reglulega en persónuverndarstefna var fyrst samþykkt 10.07.2018 og útgefin af fjársýslustjóra.
Ábyrgðaraðili vinnslunnar er:
Fjársýsla ríkisins
Katrínartún 6
540269-7509
545-7500
Fjársýslan ber ábyrgð á því að vinnsla persónuupplýsinga í starfsemi stofnunarinnar sé í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð (ESB) 2016/679.
Persónuverndarfulltrúi Fjársýslu ríkisins veitir nánari upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga og aðstoðar einstaklinga við að neyta réttinda sinna.
Persónuverndarfulltrúi
Hægt er að hafa samband við persónuverndarfulltrúa Fjársýslunnar í síma 545-8800 eða með tölvupósti á personuvernd@fjs.is.
4.1 Samskipti, móttaka og almenn stjórnsýsla
Fjársýsla ríkisins vinnur persónuupplýsingar þegar einstaklingar hafa samband við stofnunina, í gegnum beiðnagátt island.is, senda bréfpóst, hringja, mæta á starfsstöð eða eiga önnur almenn samskipti við stofnunina.
Þessi vinnsla getur varðað málshefjendur, fyrrverandi eða núverandi starfsfólk ríkisins, gesti, tengiliði stofnana, birgja, verktaka, umsækjendur, fulltrúa fyrirtækja eða aðra einstaklinga sem eiga erindi við Fjársýsluna.
Unnið getur verið með:
nafn og samskiptaupplýsingar,
vinnustað eða tengsl við stofnun, fyrirtæki eða annan aðila,
efni erindis,
upplýsingar í bréfpósti, tölvupósti eða fylgigögnum,
upplýsingar sem verða til við símsvörun eða afgreiðslu erindis,
upplýsingar um komu gesta, svo sem nafn og vinnustað,
samskiptaferil og upplýsingar um afgreiðslu erindis.
Í einstökum tilvikum geta erindi eða fylgigögn innihaldið viðkvæmar persónuupplýsingar. Fjársýslan vinnur þá aðeins þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að koma erindinu í réttan farveg eða afgreiða það.
Upplýsingarnar eru unnar til að:
taka á móti erindum,
svara símtölum og fyrirspurnum,
koma bréfpósti og erindum til rétts móttakanda,
skrá og varðveita erindi eftir því sem skylt er,
taka á móti gestum og halda utan um heimsóknir,
tryggja öryggi og rekjanleika í samskiptum við stofnunina,
sinna almennri stjórnsýslu og þjónustu.
Upplýsingar koma einkum frá einstaklingnum sjálfum, úr bréfpósti, símtölum, tölvupósti, gestaskráningarkerfi, málaskrá, mannauðs- og launakerfi ríkisins eða öðrum samskiptakerfum.
Aðgang hafa þeir starfsmenn Fjársýslunnar sem þurfa að taka við, skrá, framsenda eða afgreiða erindi. Upplýsingar geta einnig verið aðgengilegar þjónustuaðilum sem reka eða þjónusta málaskrár-, símsvörunar-, gestaskráningar- eða samskiptakerfi fyrir Fjársýsluna.
4.2 Umsóknir um störf hjá Fjársýslu ríkisins
Fjársýsla ríkisins vinnur persónuupplýsingar um umsækjendur um störf hjá stofnuninni. Vinnslan fer fram til að taka við umsóknum, meta hæfni umsækjenda, eiga samskipti við umsækjendur og ljúka ráðningarferli.
Unnið getur verið með:
nafn, kennitölu og samskiptaupplýsingar,
upplýsingar í ferilskrá og umsókn,
upplýsingar um menntun, starfsreynslu, hæfni og réttindi,
umsagnir eða upplýsingar frá meðmælendum, ef við á,
niðurstöður hæfnimats og viðtala,
samskipti við umsækjanda,
gögn sem nauðsynleg eru til að ganga frá ráðningu ef umsækjandi er ráðinn.
Tilgangurinn er að:
taka við og halda utan um umsóknir,
meta hæfni umsækjenda,
velja einstakling í starf,
skrá og varðveita gögn um ráðningarferli,
svara beiðnum um upplýsingar eða rökstuðning eftir því sem við á,
ganga frá ráðningu ef umsækjandi er ráðinn.
Upplýsingar koma einkum frá umsækjandanum sjálfum, ráðningarkerfi, meðmælendum sem umsækjandi hefur tilgreint og eftir atvikum úr opinberum skrám eða öðrum heimildum þegar heimild stendur til þess.
Aðgang hafa þeir starfsmenn Fjársýslunnar sem koma að ráðningarferlinu, svo sem mannauðsþjónusta, stjórnendur og aðrir sem þurfa að meta umsókn vegna viðkomandi starfs. Þjónustuaðilar ráðningar-, skjalavistunar- eða samskiptakerfa kunna að hafa tæknilegan aðgang samkvæmt samningi.
4.3 Greiðslur, álagning og innheimta opinberra krafna
Fjársýsla ríkisins vinnur persónuupplýsingar í tengslum við greiðslur, innheimtu, álagningu opinberra gjalda og önnur fjárhagsleg samskipti sem tengjast verkefnum stofnunarinnar. Vinnslan getur varðað einstaklinga sem eru viðskiptavinir, lánadrottnar, rétthafar, umsækjendur, umboðsmenn eða tengiliðir hjá stofnunum, fyrirtækjum eða öðrum aðilum.
Fjársýslan vinnur einkum eftirfarandi upplýsingar eftir því sem nauðsynlegt er hverju sinni:
auðkennisupplýsingar, svo sem nafn og kennitölu,
samskiptaupplýsingar, svo sem heimilisfang, netfang og símanúmer,
bankaupplýsingar,
upplýsingar um reikninga, kröfur, greiðslur, inneignir og endurgreiðslur,
upplýsingar um skuldastöðu, vanskil, innheimtu og greiðslufyrirkomulag,
upplýsingar sem tengjast álagningu opinberra gjalda og framtalsskyldu þeirra eða annarra krafna,
upplýsingar úr samskiptum við einstaklinga, umboðsmenn, stofnanir eða aðra aðila,
gögn sem nauðsynleg eru vegna lögbundins eftirlits, endurskoðunar eða afstemmingar.
Að jafnaði er ekki unnið með viðkvæmar persónuupplýsingar í þessum vinnslum. Í einstökum tilvikum geta upplýsingar þó tengst eðli þeirrar þjónustu eða kröfu sem viðkomandi stofnun hefur stofnað til, til dæmis ef krafa tengist heilbrigðis-, mennta- eða félagslegri þjónustu. Fjársýslan vinnur þá aðeins þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru vegna greiðslu, álagningar eða innheimtu kröfunnar.
Upplýsingarnar eru unnar til að Fjársýslan geti sinnt lögbundnum og samningsbundnum verkefnum sínum, meðal annars til að:
greiða reikninga og aðrar skuldbindingar ríkissjóðs eða ríkisstofnana,
annast endurgreiðslur, inneignir, fyrirframgreiðslur og leiðréttingar,
framkvæma framlög, styrki og aðrar samningsbundnar útgreiðslur,
standa skil á lögbundnum greiðslum og frádráttum,
stofna, skrá og innheimta opinber gjöld og aðrar kröfur,
ráðstafa greiðslum á réttan hátt og framkvæma afstemmingar,
annast fruminnheimtu, vanskilainnheimtu, afskriftir og greiðsluáætlanir,
svara fyrirspurnum og eiga nauðsynleg samskipti við einstaklinga, umboðsmenn, stofnanir og aðra aðila,
sannreyna upplýsingar þegar það er nauðsynlegt vegna greiðslu-, álagningar- eða innheimtuferla,
afhenda gögn til lögbundins eftirlits eða endurskoðunar, svo sem til Ríkisendurskoðunar.
Upplýsingar geta komið frá:
einstaklingnum sjálfum eða umboðsmanni hans,
ríkisstofnunum eða öðrum opinberum aðilum sem stofna kröfur eða senda upplýsingar til Fjársýslunnar,
Skattinum, eftir því sem við á,
launagreiðendum eða öðrum aðilum sem tengjast lögbundnum skilum,
greiðslu- og innheimtukerfum,
opinberum skrám, svo sem þjóðskrá og Hagstofu,
öðrum gagnaveitum þegar heimild stendur til slíkrar uppflettingar.
Aðgang að upplýsingunum hefur það starfsfólk Fjársýslunnar sem þarf á þeim að halda vegna starfa sinna, svo sem vegna greiðslustýringar, bókhalds, innheimtu, álagningar, afstemminga eða eftirlits.
Upplýsingum kann einnig að vera miðlað til annarra aðila þegar það er nauðsynlegt eða skylt samkvæmt lögum, svo sem:
viðkomandi stofnana sem krafa eða greiðsla varðar,
greiðslumiðlara og banka,
innheimtuaðila,
sveitarfélaga, lífeyrissjóða eða annarra lögbundinna viðtakenda,
sýslumanna, Hagstofu eða annarra stjórnvalda þegar það á við,
Ríkisendurskoðunar vegna lögbundins eftirlits og endurskoðunar,
vinnsluaðila sem veita Fjársýslunni tæknilega þjónustu eða rekstrarþjónustu.
4.4 Rekstur, þróun og þjónusta stafrænna lausna og rafrænna kerfa
Fjársýsla ríkisins vinnur persónuupplýsingar við rekstur, þróun, viðhald og þjónustu stafrænna lausna rafrænna kerfa sem notuð eru við fjárhags-, mannauðs-, launa- og stjórnsýsluverkefni ríkisins.
Vinnslan getur varðað notendur kerfa, starfsfólk ríkisstofnana, tengiliði stofnana, birgja, greiðsluþega, launþega og aðra einstaklinga sem upplýsingar kunna að tengjast í undirliggjandi kerfum.
Fjársýslan vinnur einkum eftirfarandi upplýsingar eftir því sem nauðsynlegt er hverju sinni:
nafn, kennitölu og notendaauðkenni,
netfang, símanúmer, stofnun, starfseiningu og starfshlutverk,
upplýsingar um aðgangsheimildir, hlutverk og breytingar á aðgangi,
þjónustubeiðnir, samskipti, villulýsingar og fylgigögn,
kerfis- og aðgerðaskrár, svo sem upplýsingar um innskráningar, breytingar, keyrslur og villur,
upplýsingar sem birtast í prófunar-, þróunar- eða rekstrargögnum,
upplýsingar úr fjárhags-, launa- eða mannauðskerfum þegar þær eru nauðsynlegar vegna reksturs, þjónustu, prófana eða bilanagreiningar.
Í slíkum vinnslum geta í undantekningartilvikum komið fram viðkvæmar persónuupplýsingar eða trúnaðargögn, einkum ef raunveruleg gögn úr launa-, mannauðs- eða fjárhagskerfum eru notuð við þjónustu, prófanir eða bilanagreiningu. Fjársýslan leggur þá áherslu á lágmörkun gagna og aðgangstakmarkanir.
Í þjónustubeiðnum og rekstrargögnum geta komið fram upplýsingar sem notendur láta sjálfir í té, þar á meðal fylgigögn eða lýsingar á málum. Fjársýslan leggur áherslu á að slík gögn séu takmörkuð við það sem nauðsynlegt er til að leysa beiðni, villu eða rekstrarfrávik.
Upplýsingarnar eru unnar til að:
reka og viðhalda fjárhags-, launa- og mannauðskerfum ríkisins,
veita notendum kerfa þjónustu og tæknilega aðstoð,
stofna, breyta og loka notendaaðgangi,
tryggja rétta hlutverkaskiptingu og aðgangsstýringu,
greina og leysa villur eða rekstrarfrávik,
prófa breytingar og nýja virkni áður en hún fer í rekstur,
tryggja rekjanleika aðgerða í kerfum,
stuðla að upplýsingaöryggi og stöðugleika í rekstri,
sinna lögbundnum og samningsbundnum verkefnum Fjársýslunnar fyrir ríkissjóð og ríkisstofnanir.
Upplýsingarnar eru einnig unnar til að stýra aðgangi að kerfum og skráarsvæðum, taka við og afgreiða þjónustubeiðnir, framkvæma tæknilegar keyrslur, prófa breytingar, greina villur og tryggja rekstraröryggi þeirra kerfa sem Fjársýslan rekur eða þjónustar fyrir ríkisstofnanir.
Upplýsingar geta komið frá:
einstaklingnum sjálfum,
notendum kerfa,
ríkisstofnunum sem nýta kerfi eða þjónustu Fjársýslunnar,
undirliggjandi fjárhags-, launa- og mannauðskerfum,
þjónustubeiðnum, verkbeiðnakerfum og samskiptum,
kerfis- og aðgerðaskrám,
þjónustuaðilum sem koma að rekstri eða viðhaldi kerfa.
Aðgang að upplýsingunum hefur starfsfólk Fjársýslunnar sem þarf á þeim að halda vegna reksturs, þjónustu, þróunar, prófana, aðgangsstýringar eða öryggiseftirlits.
Upplýsingar geta einnig verið aðgengilegar þjónustuaðilum sem vinna fyrir Fjársýsluna, svo sem rekstrar-, kerfis- eða hýsingaraðilum, að því marki sem nauðsynlegt er vegna þjónustunnar. Slíkir aðilar skulu vinna samkvæmt samningi og fyrirmælum Fjársýslunnar eða annars ábyrgðaraðila, eftir því sem við á.
4.5 Gagnagreining, mælaborð, gagnavöruhús og opin birting upplýsinga
Fjársýsla ríkisins vinnur persónuupplýsingar við gerð skýrslna, mælaborða, gagnagreininga, sjálfvirkniferla og eftir atvikum opinbera birtingu fjárhags- og mannauðsupplýsinga. Tilgangurinn er meðal annars að bæta yfirsýn, styðja ákvarðanatöku, auka skilvirkni og tryggja gagnsæi í opinberum fjármálum.
Það fer eftir verkefni hvaða upplýsingar eru unnar. Um getur verið að ræða:
nafn, kennitölu eða önnur auðkenni,
stofnun, starf, starfshlutfall, stéttarfélagsaðild og starfsstað,
fjárhagsupplýsingar, svo sem reikningsupplýsingar, fjárhæðir og greiðslur,
launa- eða mannauðsupplýsingar þegar slíkt er nauðsynlegt vegna viðkomandi greiningar,
upplýsingar úr gagnavöruhúsum, fjárhagskerfum, mannauðskerfum eða skýrslukerfum,
upplýsingar um bjóðendur eða samningsaðila í opinberum innkaupum,
upplýsingar úr samnings- eða innkaupagögnum,
samanteknar eða afleiddar upplýsingar í mælaborðum,
tæknilegar upplýsingar sem verða til við sjálfvirkar keyrslur.
Í tengslum við gagnagreiningu, mælaborð og gagnavöruhús getur Fjársýslan unnið upplýsingar um starfsfólk ríkisins, laun, starf, stofnun, starfshlutfall, starfsstað, starfsheiti, menntun, stéttarfélagsaðild, lífeyrissjóðsupplýsingar og aðrar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að veita stofnunum yfirsýn, styðja stjórnun, gera skýrslur og bæta þjónustu.
Við opinbera birtingu fjárhagsupplýsinga er leitast við að hreinsa eða takmarka persónuupplýsingar þannig að óþarfar eða viðkvæmar upplýsingar birtist ekki.
Upplýsingarnar eru unnar til að:
útbúa skýrslur og mælaborð fyrir stjórnun, eftirlit og yfirsýn,
greina fjárhags-, rekstrar-, launa- og mannauðsupplýsingar,
styðja við áætlanagerð, uppgjör og stjórnsýslu,
bæta yfirsýn og ákvarðanatöku í opinberum innkaupum.
sjálfvirknivæða endurtekin ferli,
birta fjárhagsupplýsingar opinberlega þegar heimild stendur til þess,
tryggja gagnsæi um ráðstöfun opinberra fjármuna,
draga úr handvirkri vinnslu og villuhættu.
Upplýsingarnar eru einnig unnar til að útbúa mannauðsgreiningar, mælaborð og samantektir fyrir ríkisstofnanir, m.a. til að veita yfirsýn yfir mannauð ríkisins, styðja áætlanagerð og auðvelda stofnunum að sinna lögbundnum og stjórnsýslulegum verkefnum sínum.
Upplýsingar geta komið frá:
fjárhagskerfum ríkisins,
launa- og mannauðskerfum,
gagnavöruhúsum,
bókhalds- og uppgjörsgögnum,
innkaupa-, samnings-, fjárhags- og skýrslukerfum Fjársýslunnar,
ríkisstofnunum sem afhenda eða yfirfara gögn,
sjálfvirkum keyrslum og skýrslukerfum.
Aðgang hafa þeir starfsmenn Fjársýslunnar sem þurfa upplýsingarnar vegna greiningar, skýrslugerðar, mælaborða, birtingar eða eftirlits. Aðgangur að mælaborðum og greiningum er takmarkaður eftir hlutverkum og þörf.
Aðgangur að mælaborðum og greiningum er takmarkaður við skilgreind hlutverk. Þegar birtar eru samanteknar upplýsingar er leitast við að draga úr persónugreinanleika, meðal annars með aðgangsstýringum, samantektum og lágmörkun upplýsinga.
Ef upplýsingar eru birtar opinberlega, til dæmis í opnu bókhaldi, geta þær orðið aðgengilegar almenningi. Áður en slíkar upplýsingar eru birtar fer fram yfirferð og hreinsun til að draga úr hættu á birtingu persónuupplýsinga sem ekki eiga að birtast.
4.6 Mannauðs-, launa- og starfsmannaumsýsla fyrir ríkisstofnanir
Fjársýsla ríkisins vinnur persónuupplýsingar í tengslum við mannauðs-, launa- og starfsmannaumsýslu sem stofnunin sinnir fyrir ríkisstofnanir (A-hluta stofnanir og aðrar stofnanir sem gert hafa þjónustusamning við Fjársýsluna). Vinnslan varðar starfsfólk ríkisstofnana, umsækjendur um störf hjá þeim, fyrrverandi starfsfólk, nefndarmenn og aðra einstaklinga sem fá greiðslur eða réttindi í gegnum mannauðs- og launakerfi ríkisins.
Vinnslan fer fram til að tryggja rétta skráningu starfsmannaupplýsinga, réttindastöðu, launaútreikninga, launagreiðslur, skil launatengdra gjalda og nauðsynlega þjónustu við stofnanir og starfsfólk þeirra.
Fjársýslan vinnur einkum eftirfarandi upplýsingar, eftir því sem við á:
nafn, kennitölu og samskiptaupplýsingar,
upplýsingar um stofnun, stéttarfélag, starf, starfshlutfall, starfsheiti og starfseiningu,
ráðningarupplýsingar, ráðningarsamninga og breytingar á starfi eða kjörum,
upplýsingar um laun, launaflokka, launategund, frádrátt og útborguð laun,
bankaupplýsingar,
Upplýsingar um frádrátt frá innheimtumanni ríkis og sveitarfélaga
upplýsingar um skattkort, staðgreiðslu, , lífeyrissjóði, séreignarsparnað tryggingagjald og önnur launatengd gjöld
upplýsingar um orlof, starfsaldur, réttindi og orlofsskuldbindingar,
tímaskráningu, viðveru, leyfi og fjarvistir,
upplýsingar sem tengjast veikindum eða öðrum fjarvistum þegar þær hafa áhrif á laun, réttindi eða skráningu,
upplýsingar í launaseðlum, launamiðum, skilagreinum og öðrum lögbundnum skilum,
upplýsingar vegna vottorða, staðfestinga, starfssögu
samskipti, þjónustubeiðnir og gögn sem tengjast fyrirspurnum frá stofnunum eða starfsfólki,
Í þessum vinnslum koma fram viðkvæmar persónuupplýsingar, eins og t.d. upplýsingar um stéttarfélagsaðild, veikindi og fjarvistir. Fjársýslan vinnur slíkar upplýsingar aðeins að því marki sem nauðsynlegt er vegna viðkomandi verkefnis.
Upplýsingarnar eru unnar til að:
halda utan um mannauðstengdar upplýsingar fyrir ríkisstofnanir,
tryggja rétta skráningu starfssögu, starfsaldurs og réttinda,
reikna og greiða laun,
birta launaseðla og tryggja að starfsfólk fái réttar upplýsingar um laun sín,
halda utan um orlofs upplýsingar , viðveru, tímaskráningu, leyfi og fjarvistir,
framkvæma launaleiðréttingar og breytingar vegna kjarasamninga,
annast kostnaðarfærslu og afstemmingar vegna launa,
skila launamiðum, skilagreinum, staðgreiðslu og öðrum lögbundnum upplýsingum til viðeigandi aðila,
veita ríkisstofnunum þeirra þjónustu og svara fyrirspurnum,
gefa út starfsvottorð og staðfestingar þegar heimild stendur til þess,
þróa, prófa og viðhalda mannauðs- og launakerfum ríkisins að því marki sem nauðsynlegt er,
annast uppgjör launa, orlofs og annarra leyfistegunda við starfslok,
veita eða þjónusta rafrænan vettvang fyrir auglýsingu starfa og ráðningarferli hjá ríkisstofnunum,
svara fyrirspurnum og veita staðfestingar vegna starfs, launa, lífeyrisréttinda, eða annarra réttinda þegar heimild stendur til þess.
Ef unnið er með viðkvæmar persónuupplýsingar, til dæmis upplýsingar um veikindi eða fjarvistir, þarf jafnframt að uppfylla skilyrði 11. gr. laga nr. 90/2018. Ef upplýsingar um refsiverða háttsemi koma til vinnslu þarf að uppfylla skilyrði 12. gr. laganna.
Upplýsingarnar geta komið frá:
viðkomandi ríkisstofnun,
yfirmanni eða launafulltrúa viðkomandi stofnunar,
mannauðs-, launa-, viðveru- og tímaskráningarkerfum,
opinberum skrám, svo sem þjóðskrá,
Skattinum, lífeyrissjóðum, séreignarsjóðum, bönkum, stéttarfélögum og öðrum aðilum eftir því sem við á,
þjónustubeiðnum, tölvupósti og öðrum samskiptum.
Aðgang að upplýsingunum hefur það starfsfólk Fjársýslunnar sem þarf á þeim að halda vegna mannauðs-, launa-, kerfis-, þjónustu- eða uppgjörsverkefna.
Upplýsingar geta einnig verið aðgengilegar eða þeim miðlað til:
þeirrar ríkisstofnunar sem viðkomandi starfar hjá eða hefur sótt um starf hjá,
starfsmannsins sjálfs,
yfirmanna og launafulltrúa viðkomandi stofnunar, eftir hlutverki og heimildum,
banka vegna launaútborgana,
Skattsins vegna staðgreiðslu, launamiða og annarra lögbundinna skila,
lífeyrissjóða og séreignarsjóða,
Ríkisendurskoðunar og annarra eftirlitsaðila þegar það á við,
þjónustuaðila sem reka eða þjónusta mannauðs-, launa-, viðveru- eða skjalakerfi,
Skattsins og Ríkisendurskoðunar vegna lögbundinna skila, uppgjörs, eftirlits eða endurskoðunar.
4.7 Sjálfsafgreiðsla, tímaskráning og þjónusta við starfsfólk ríkisstofnana
Fjársýslan vinnur einnig persónuupplýsingar þegar starfsfólk ríkisstofnana eða yfirmenn nota sjálfsafgreiðslu, tímaskráningu, viðverukerfi, þjónustugátt eða sambærilegar lausnir.
Unnið getur verið með:
auðkennis- og samskiptaupplýsingar,
upplýsingar um starf, stofnun, yfirmann og starfshlutfall,
upplýsingar sem starfsfólk skráir eða uppfærir sjálft, svo sem menntun, tengiliðaupplýsingar og aðrar starfstengdar upplýsingar,
tímaskráningar, viðveru, fjarvistir, leyfi og orlof,
beiðnir, samþykktir, athugasemdir og samskipti,
aðgerðaskrár og upplýsingar um breytingar í kerfum.
Tilgangur vinnslunnar er að:
gera starfsfólki kleift að skoða og uppfæra eigin upplýsingar,
gera yfirmönnum kleift að samþykkja og yfirfara upplýsingar samkvæmt hlutverki sínu,
halda utan um vinnutíma, fjarvistir, orlof og réttindi,
tryggja að upplýsingar sem hafa áhrif á laun og réttindi séu réttar,
veita þjónustu og leysa úr fyrirspurnum eða villum.
Upplýsingar koma frá starfsmanninum sjálfum, yfirmönnum, viðkomandi stofnun og þeim mannauðs-, launa- og viðverukerfum sem notuð eru.
Aðgang hafa starfsmaðurinn sjálfur, viðeigandi yfirmenn, launafulltrúar, viðkomandi stofnun og starfsfólk Fjársýslunnar sem þarf upplýsingarnar vegna þjónustu, launavinnslu, leiðréttinga eða kerfisreksturs.
4.8 Vottorð, staðfestingar og fyrirspurnir vegna starfs og launa
Fjársýslan vinnur persónuupplýsingar þegar óskað er eftir vottorðum, staðfestingum eða upplýsingum um starf, laun, starfslok, starfsferil eða önnur tengd atriði.
Unnið getur verið með:
nafn og kennitölu,
upplýsingar um starf, starfsferil, stofnun og starfshlutfall,
launaupplýsingar,
upplýsingar um starfslok eða réttindi,
efni beiðni og samskipti,
gögn sem nauðsynleg eru til að staðfesta viðkomandi upplýsingar.
Upplýsingarnar eru unnar til að:
svara fyrirspurnum,
gefa út vottorð eða staðfestingar,
afhenda upplýsingar til viðurkenndra viðtakenda,
þjónusta stofnanir og starfsfólk þeirra,
uppfylla lagaskyldur eða verða við lögmætum beiðnum.
Upplýsingarnar koma úr mannauðs- og launakerfum, frá viðkomandi stofnun, frá starfsmanninum sjálfum eða úr fyrri samskiptum og gögnum.
Aðgang hafa þeir starfsmenn Fjársýslunnar og viðkomandi stofnunar sem þurfa upplýsingarnar til að afgreiða beiðnina. Upplýsingum er aðeins miðlað til þess aðila sem hefur heimild til að fá þær, svo sem starfsmannsins sjálfs, viðkomandi stofnunar, eða annars viðurkennds viðtakanda.
4.9 Opinber innkaup
Fjársýsla ríkisins vinnur persónuupplýsingar í tengslum við opinber innkaup, miðlæga samninga og samningaþjónustu fyrir ríkisstofnanir og aðra opinbera aðila. Vinnslan getur varðað bjóðendur, tengiliði bjóðenda, tengiliði samningsaðila, undirverktaka, starfsfólk bjóðenda og tengiliði opinberra kaupanda.
Fjársýslan vinnur einkum eftirfarandi upplýsingar, eftir því sem við á:
nafn, kennitölu og samskiptaupplýsingar,
upplýsingar um stöðu, hlutverk eða tengsl einstaklings við bjóðanda, kaupanda eða samningsaðila,
upplýsingar í tilboðum, útboðsgögnum, samningsgögnum og samskiptum,
upplýsingar um hæfni, reynslu, menntun, vottanir eða réttindi starfsfólks bjóðanda þegar slíkt er hluti af mati á tilboði,
upplýsingar um undirverktaka og tengiliði þeirra,
upplýsingar um stöðu opinberra gjalda þegar slíkt er hluti af mati eða hæfiskröfum,
fundargerðir, samskipti og önnur gögn sem tengjast undirbúningi, framkvæmd eða eftirfylgni útboða og samninga.
Í afmörkuðum tilvikum geta gögn innihaldið viðkvæmari upplýsingar eða upplýsingar sem sæta sérstakri vernd, til dæmis ef gögn um sakavottorð, sérhæfð réttindi eða hæfni einstaklinga eru hluti af útboðsgögnum. Slíkar upplýsingar eru aðeins unnar að því marki sem nauðsynlegt er vegna viðkomandi útboðs, samnings eða lögbundins ferlis.
Upplýsingarnar eru unnar til að:
undirbúa og framkvæma útboð,
veita útboðsþjónustu fyrir ríkisstofnanir og aðra opinbera aðila,
taka við, yfirfara og meta tilboð,
meta hæfi bjóðenda og eftir atvikum starfsfólks eða undirverktaka þeirra,
tryggja rétta framkvæmd útboða og samninga,
halda utan um miðlæga samninga og rammasamninga,
greina sameiginlegar innkaupaþarfir opinberra aðila,
svara erindum og þjónustubeiðnum vegna innkaupa og samninga,
varðveita gögn vegna rekjanleika, eftirlits og skjalavörslu.
Upplýsingar geta komið frá:
bjóðendum,
tengiliðum bjóðenda eða samningsaðila,
undirverktökum,
opinberum kaupanda,
útboðskerfum og samningskerfum,
verkbeiðna- og samskiptakerfum,
opinberum skrám eða öðrum heimildum þegar heimild stendur til slíkrar upplýsingaöflunar.
Aðgang að upplýsingunum hefur starfsfólk Fjársýslunnar sem kemur að innkaupum, útboðum, samningsgerð, þjónustu, greiningu eða eftirliti.
Upplýsingum getur einnig verið miðlað til:
þess opinbera kaupanda sem viðkomandi útboð eða samningur varðar,
bjóðenda eða samningsaðila að því marki sem reglur um útboð og málsmeðferð gera ráð fyrir,
kærunefndar útboðsmála ef mál kemur til meðferðar þar,
annarra stjórnvalda eða eftirlitsaðila þegar lagaheimild stendur til þess,
vinnsluaðila sem reka eða þjónusta útboðs-, samnings-, skjalavistunar- eða samskiptakerfi.
Vinnsla Fjársýslunnar á persónuupplýsingum byggist einkum á því að hún er nauðsynleg til að stofnunin geti uppfyllt lagaskyldur sínar eða sinnt verkefnum í almannaþágu og við beitingu opinbers valds, sbr. 3. og 5. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018, sbr. c- og e-lið 1. mgr. 6. gr. GDPR.
Þegar vinnsla tengist samningsbundnum greiðslum eða réttarsambandi kann hún einnig að byggjast á 2. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018, sbr. b-lið 1. mgr. 6. gr. GDPR, svo sem í tengslum við ráðningu starfsfólks og gerð samninga.
Þegar vinnslan tengist ráðningarsambandi, umsóknum um starf, launagreiðslum eða framkvæmd réttinda og skyldna samkvæmt ráðningarsambandi getur hún einnig byggst á því að hún sé nauðsynleg vegna samnings eða ráðstafana áður en samningur er gerður, sbr. 2. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018, sbr. b-lið 1. mgr. 6. gr. GDPR.
Vinnsla persónuupplýsinga í öryggis- og eignavörsluskyni, þar á meðal með eftirlitsmyndavélum og skráning gesta, byggist á á lögmætum hagsmunum Fjársýslunnar af öryggi, móttöku og skipulagi heimsókna, sbr. 6. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018, að því marki sem sú heimild á við um viðkomandi vinnslu.
Þegar unnið er með viðkvæmar persónuupplýsingar eða upplýsingar um refsiverða háttsemi þarf einnig að uppfylla sérstök skilyrði 11. eða 12. gr. laga nr. 90/2018, eftir því sem við á.
Fjársýsla ríkisins er afhendingarskyldur aðili samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn.
Þar sem Fjársýslan er opinber stofnun eru gögn varðveitt og eftir atvikum afhent til opinbers skjalasafns í samræmi við lög um opinber skjalasöfn, skjalavistunaráætlanir og reglur um opinbera skjalavörslu. Afhending gagna til Þjóðskjalasafns Íslands eða annars opinbers skjalasafns er hluti af lögbundinni skjalavörslu en ekki sjálfstæð þjónustuvinnsla gagnvart einstaklingum.
Persónuupplýsingar eru varðveittar í samræmi við lög, skjalavistunarreglur og samþykktir Þjóðskjalasafns Íslands.
Varðveislutími getur verið mismunandi eftir eðli upplýsinga og tilgangi vinnslunnar.
Gögn sem falla ekki undir lög um opinber skjalasöfn eru ekki varðveitt lengur en nauðsynlegt er, svo sem prófunargögn, vinnuafrit, tímabundnar útflutningsskrár og þjónustufylgigögn.
Fjársýsla ríkisins beitir viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum öryggisráðstöfunum til að vernda persónuupplýsingar gegn óheimilum aðgangi, breytingum, glötun eða annarri ólögmætri vinnslu.
Slíkar ráðstafanir fela meðal annars í sér:
aðgangsstýringar,
auðkenningu notenda,
skráningu aðgerða,
öryggi upplýsingakerfa,
fræðslu starfsfólks,
reglubundið áhættumat og öryggiseftirlit.
Samkvæmt lögum nr. 90/2018 og GDPR kunna einstaklingar meðal annars að eiga rétt á:
aðgangi að eigin persónuupplýsingum,
leiðréttingu rangra upplýsinga,
takmörkun vinnslu í ákveðnum tilvikum,
andmælum við vinnslu í ákveðnum tilvikum,
flutningi gagna þegar lagaskilyrði eru uppfyllt.
Réttindin geta sætt takmörkunum samkvæmt lögum.
Beiðnir um nýtingu réttinda skulu sendar til Fjársýslu ríkisins eða persónuverndarfulltrúa.
Telji einstaklingur að vinnsla persónuupplýsinga hans samræmist ekki lögum getur hann lagt fram kvörtun hjá Persónuvernd.
Nánari upplýsingar má finna á www.personuvernd.is.
Fjársýsla ríkisins kann að uppfæra þessa persónuverndaryfirlýsingu þegar breytingar verða á starfsemi stofnunarinnar, vinnslu persónuupplýsinga eða gildandi regluverki.
Ávallt er birt nýjasta útgáfa yfirlýsingarinnar á vef Fjársýslu ríkisins.
