Opinberir aðilar og stofnanir
Aðili sem fer með ríkis- eða sveitarstjórnarvald og þær stofnanir, sjóðir og fyrirtæki sem eru að hálfu eða meiri hluta í eigu ríkis eða sveitarfélaga.
Opinber aðili getur farið með opinbert vald eða sinnt lögbundnum verkefnum fyrir almenning.
Dæmi um opinbera aðila
Opinberir aðilar geta til dæmis verið:
ráðuneyti
ríkisstofnanir
sveitarfélög
skólar á vegum hins opinbera
heilbrigðisstofnanir á vegum hins opinbera
lögregla
dómstólar
eftirlitsstofnanir
Fyrirtæki eða félög í eigu ríkis eða sveitarfélaga geta einnig verið opinberir aðilar ef þau sinna opinberu eða lögbundnu hlutverki.
Opinber aðili eða einkaaðili
Opinber aðili tilheyrir hinu opinbera eða starfar fyrir það.
Einkaaðili er einstaklingur, fyrirtæki eða félag sem starfar ekki á vegum ríkis eða sveitarfélags.
Ríkisreikningur tekur til allrar starfsemi ríkisins og skiptist í A-, B- og C-hluta.
Flokkunin endurspeglar eðli starfseminnar, fjármögnun hennar og tengsl við ríkissjóð.
A-, B- og C-hlutar ríkisins
A-hluti nær til kjarnastarfsemi ríkisins og þeirra aðila sem starfa innan ramma ríkissjóðs. A-hlutanum er skipt í þrjá flokka:
A1-ríkisstofnanir
A1-ríkisstofnanir eru hluti af beinum rekstri ríkisins.Helstu einkenni:
Hafa ekki sjálfstæða fjárhagsstöðu.
Tekjur og gjöld færast beint í ríkissjóð.
Starfa innan fjárheimilda sem Alþingi ákveður.
A2-ríkisstofnanir
A2-ríkisstofnanir hafa meira fjárhagslegt sjálfstæði en A1-stofnanir en eru áfram í eigu og undir stjórn ríkisins.Helstu einkenni:
Hafa að hluta eigin tekjur.
Halda oft eigið bókhald.
Standa að verulegu leyti undir rekstri sínum með eigin tekjum.
Hafa sjálfstæðari rekstur en A1-stofnanir.
A3-ríkisaðilar
A3-ríkisaðilar starfa að jafnaði á markaðslegum forsendum en eru áfram hluti af A-hluta ríkisaðila.Helstu einkenni:
Hafa sjálfstæðan fjárhag.
Halda eigin reikningsskil.
Starfa að mestu á markaði.
B-hluti nær til sjálfstæðra opinberra stofnana, sjóða og annarra aðila sem eru undir stjórn ríkisins en reka starfsemi sína að mestu með eigin tekjum.Helstu einkenni:
Halda sjálfstæð reikningsskil
Hafa eigin tekjulindir
Eru ekki hluti af daglegum rekstri ríkissjóðs
C-hluti nær meðal annars til félaga í meirihlutaeigu ríkisins sem starfa á markaði.Helstu einkenni:
Starfa á eigin ábyrgð
Hafa aðskilinn fjárhag frá ríkissjóði
Halda eigin reikningsskil
Geta greitt arð til ríkisins sem eiganda
