Fara beint í efnið
Fjársýslan Forsíða
Fjársýslan Forsíða

Fjársýslan

Notendaskilmálar Elfur-API 

Fjársýsla ríkisins (Fjársýslan) ber ábyrgð á þróun og rekstri vefþjónustulagsins Elfur-API, sem er rafræn gagna- og þjónustuveita fyrir ríkisaðila í A-hluta. Elfur-API er ætlað að tryggja örugga og skilvirka miðlun gagna á milli kerfa ríkisins, ríkisaðila og annarra samstarfsaðila. 

Fjársýslan áskilur sér rétt til að uppfæra notendaskilmála þessa og er ávallt sú útgáfa í gildi sem er aðgengileg á hverjum tíma á vefsvæðinu island.is/s/fjarsyslan

Skilmálar þessir eiga við um aðgang og notkun á Elfur-API. 

Lagalegur fyrirvari 

Gögn í Elfur-API koma frá þeim ríkisaðilum sem viðkomandi gögn heyra undir í fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins, ORRA. Áreiðanleiki gagna er því ábyrgð hvers ríkisaðila. 

Fjársýslan ábyrgist ekki aðgengi að gögnum (data availability) ef upp koma ófyrirséð vandamál og þjónusturof sem valda því að ekki sé hægt að sækja eða senda gögn. Fjársýslan reynir að tryggja áreiðanleika Elfur-API eftir fremsta megni en ber ekki ábyrgð á því að samskipti, stillingar eða gögn birtist rétt, vistist eða skili sér til notenda. 

Fjársýslan ber ekki ábyrgð á óþægindum eða tjóni sem orsakast beint eða óbeint vegna bilunar í tölvubúnaði og/eða hugbúnaði Fjársýslunnar eða notanda eða af öðrum orsökum, sem kunna að valda því að gögn séu ekki rétt eða að notandi nái ekki að tengjast vefþjónustunni. Fjársýslan ber ekki ábyrgð á óþægindum eða tjóni sem kann að orsakast beint eða óbeint vegna galla eða bilunar í endabúnaði, tengingu við veraldarvefinn, þeim hugbúnaði sem nauðsynlegur er til tengingar við Elfur-API, vafra eða stýrikerfi notanda eða tölvukerfi Fjársýslunnar.

Fjársýslan ber ekki ábyrgð á tjóni sem:  

  1. hlýst af vanþekkingu, misskilningi eða misnotkun notanda,  

  2. rekja má til rangra aðgerða notanda eða annars aðila,  

  3. kann að hljótast, með beinum eða óbeinum hætti, af gögnum sem eru aðgengileg í Elfur-API né tjóni rakið til þeirra,  

  4. rekja má til utanaðkomandi atvika t.d. bilana, rangra utanaðkomandi upplýsinga o.þ.h. né tjóna sem talin verða falla undir óviðráðanleg tilvik (force majeure). 

Aðgangur 

Aðgangur að Elfur-API er bundinn við tiltekinn ríkisaðila og veittur á grundvelli skilgreinds hlutverks og ábyrgðar. 

Samstarfsaðilar geta fengið aðgang að vefþjónustunni að beiðni þess ríkisaðila sem ber ábyrgð á samskiptum við viðkomandi samstarfsaðila. Beiðni um aðgang skal berast Fjársýslunni frá til þess bærum aðila hjá ríkisaðilanum. 

Heimild til að óska eftir aðgangi hafa forstöðumaður, mannauðsstjóri eða rekstar-/fjármálastjóri viðkomandi ríkisaðila. Aðeins forstöðumaður og mannauðsstjóri geta óskað eftir aðgangi að vefþjónustum og endapunktum sem varða skipulagseiningar eða starfsfólk. 

Ríkisaðili ber ábyrgð á að aðgangur sé veittur í samræmi við hlutverk og verkefni viðkomandi aðila og að hann sé endurskoðaður reglulega. Ef forsendur aðgangs breytast, eða aðgangur er ekki lengur nauðsynlegur, ber ríkisaðila að óska eftir breytingu eða lokun aðgangs án tafar. 

Notendur og samstarfsaðilar skulu fara með aðgang sinn í samræmi við gildandi lög, reglur og þessa notendaskilmála. Misnotkun eða óheimil notkun aðgangs getur leitt til tímabundinnar eða varanlegrar lokunar aðgangs. 

Ef grunur vaknar um misnotkun eða öryggisbrest áskilur Fjársýslan sér rétt til að loka aðgangi fyrirvaralaust. 

Skilmálar þessir voru síðast uppfærðir: ​14.8.2026​ 

Fjársýslan

Afgreiðslu­tími

Mánudaga-fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-13

Heim­il­is­fang

Katrínartún 6
105 Reykjavík

Kt. 540269-7509

Hafðu samband

Netfang: fjarsyslan@fjarsyslan.is

Sími: 545 7500