Fara beint í efnið
Fjársýslan Forsíða
Fjársýslan Forsíða

Fjársýslan

7. október 2026 - Opinber nýsköpun: Að knýja fram raunverulegar umbætur

Opinber nýsköpun: Að knýja fram raunverulegar umbætur

Heilsdagsnámskeið fyrir þau sem vilja leiða alvöru breytingar í opinberri starfsemi

  • 7. Október

  • 10:00–15:00

  • Katrínartún 6, fundarsalur Dynjandi

  • Hámarksfjöldi: 30

Opinber starfsemi stendur frammi fyrir vaxandi kröfum um árangur, gagnsæi og virði fyrir skattgreiðendur. Enginn skortur er á umbótatillögum en of oft mæta góðar hugmyndir afgangi og daga uppi í kerfinu. Þetta námskeið veitir þátttakendum verkfæri, aðferðir og sjálfstraust til að leiða verkefni af hugmyndastigi í framkvæmd með varanlegar umbætur að leiðarljósi.

Hvað færðu út úr deginum?

  • Þarfamiðaðar aðferðir við undirbúning og framkvæmd umbótaverkefna

  • Skýra sýn á tengsl opinberra innkaupa og nýsköpunar

  • Skilning á hvenær og hvernig nýta má innkaup sem drifkraft breytinga

  • Nýtt sjónarhorn á tækifæri til verðmætasköpunar í opinberri starfsemi

  • Verkfæri til að mæla árangur og rökstyðja ákvarðanir um varanlega innleiðingu umbóta

  • Heildstæðan skilning á ferli opinberrar nýsköpunar

  • Hagnýta þjálfun í að beita viðurkenndum aðferðum við úrlausn áskorana í eigin starfi

Markmið námskeiðsins er að valdefla þátttakendur til að:

  • eiga frumkvæði að umbótum

  • leiða breytingar af öryggi

  • styðjast við viðurkenndar alþjóðlegum aðferðir innan ramma laga og reglna um opinber innkaup

Fyrir hverja er námskeiðið?

Námskeiðið hentar opinberum stjórnendum og sérfræðingum sem brenna fyrir umbótum og framförum. Í boði er að taka fyrir vandamál eða áskorun úr eigin starfi til að vinna með. Þátttakendur geta nýtt námskeiðið í að taka fyrstu skrefin í raunverulegu umbótaverkefni.

Tryggðu þér sæti núna. Aðeins 30 pláss eru í boði.

Skráning á námskeið- 7. október 2026 - Opinber nýsköpun: Að knýja fram raunverulegar umbætur

Fjársýslan

Afgreiðslu­tími

Mánudaga-fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-13

Heim­il­is­fang

Katrínartún 6
105 Reykjavík

Kt. 540269-7509

Hafðu samband

Netfang: fjarsyslan@fjarsyslan.is

Sími: 545 7500