Námskeið Fjársýsluskólans
Ný námskeið bætast við reglulega.
Námskeiðið veitir innsýn í fjármögnun ríkisstofnana frá fjárlögum til sölutekna
Þessari námskeiðsröð er gerð grein fyrir helstu þjónustuþáttum Fjársýslunnar, skipt eftir sviðum.
Mikil áhersla er á hagræðingu í ríkisrekstri. Myndböndin lýsa hvernig er hægt að nota innkaupamælaborðið sem yfirsýn yfir stöðu innkaupa.
Aðgangi að Orra er stýrt með ábyrgðarsviðum. Heiti ábyrgðarsviða vísa til þeirra verkefna og skyldna sem starfsmaður ber ábyrgð á og tryggir rétta ábyrgðarstýringu. Markmið með námskeiðinu er að þátttakandi geri sér grein fyrir helstu reglum sem varðar úthlutun ábyrgðarsviða.
Ríkisreikningurinn gefur þingi og almenningi innsýn í hvernig skattfé er notað og er mikilvægt tæki til að fylgjast merð fjármálum ríkisins. Í þessu myndbandi er lýst ferli ríkisreiknings og til hvers hann er notaður.
Í þessu myndbandi er sýnd fljótleg leið til að úrelda eignanúmer í Aski með því að velja línur í töflu og virkja úreldingarkeyrslu. Markmiðið er að halda eignaskrá snyrtilegri og tyggja að eignanúmer sem eru ekki lengur í notkun sitji ekki eftir í kerfinu.
Í þessari námskeiðsröð skoðum við það helsta sem við þurfum að vita áður en við förum dýpra inn í launakerfi Orra. Hér skoðum við aðalvalmynd í launa kerfi Orra, við skoðum gildisdagsetningar, ábyrgðarsvið, upplýsingaleit og “vista”skipunina.
Launaseðill er kvittun fyrir greiðslu launa og frádrátt . Hann sýnir hvað greitt er í skatta, lífeyrissjóð,stéttarfélag og fleira. Hann sýnir sundurliðun greidds vinnutíma og skiptingu launa í launategundir og frádrætti. Markmið með námskeiðinu er að þátttakandi þekki helstu tekju og kostnaðarliði launaseðils.
Á þessum námskeiðum ætlum við að byrja á að skoða Orra umhverfið. Við skoðum helstu flýtileiðir á lyklaborði, glugga og áhaldastikur og valmyndir.
Sjálfsafgreiðsla er heiti yfir þann hluta mannauðskerfisins sem starfsfólk ríkisins hefur aðgang að í Orra. Þar má t.d. finna “mínar síður”, starfssögu, starfsaldur, upplýsingar um fjarvistir, orlofstöku, launaseðla og þar er oft aðgangur að ýmsum eyðublöðum s.s. eins og samgöngustyrk ef viðkomandi stofnun nýtir þá möguleika.
Hér er rætt um í stuttu máli hvað upplýsinga og skjalastjórnun er og mikilvægi hennar innan stjórnsýslunnar. Áríðandi er að starfsfólk ríkisins kynni sér vel þær reglur sem gilda um skjalavistun í eigin stofnun.
Í fyrsta hluta er fjallað í stuttu máli um starfsmannalög, stéttarfélög, kjarasamninga, stofnanasamninga, ráðningarsamninga og trúnaðarmenn.
Í öðrum hluta er fjallað um um almennar siðareglur starfsfólks ríkisins, viðverustefnu, upplýsingaöryggi, vernd uppljóstrara og þagnarskyldu. Í þriðja hluta námskeiðsins er fjallað um fjarvistir eins og veikindi og orlof.
